Háskóli Íslands

Afreksnemar styrktir til náms við Háskóla Íslands

Tuttugu og átta nemendur úr sextán framhaldsskólum víðs vegar af landinu hljóta styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands í ár. Styrkjum var úthlutað úr sjóðnum í tíunda sinn við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi í dag. 

Styrkþegarnir eiga það sameiginlegt að hafa náð framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og munu hefja grunnnám við skólann í haust. Í hópnum eru 10 karlar og 18 konur og stefna þau á nám á öllum fimm fræðasviðum skólans.

Fyrstu styrkirnir voru veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands árið 2008 en frá þeim tíma hafa hátt í 230 nemendur tekið við styrkjum úr sjóðnum. Markmið hans er að styrkja efnilega nýnema til náms við Háskóla Íslands og nemur hver styrkur 375 þúsund krónum. Samanlögð styrkupphæð er því rúmar tíu milljónir króna.

Við mat á styrkþegum er horft til árangurs þeirra á stúdentsprófi auk annarra þátta eins og virkni í félagsstörfum í framhaldsskóla og árangurs á öðrum sviðum, til dæmis í listum eða íþróttum. Þá leitast stjórn sjóðsins við að styrkja nýnema sem sýnt hafa fram á sérstakar framfarir í námi eða góðan námsárangur þrátt fyrir erfiðar aðstæður.  

Í hópi styrkþeganna 28 eru samtals 17 dúxar og semidúxar úr framhaldsskólum landsins á síðustu árum. Styrkþegarnir eru sem fyrr segir úr sextán framhaldskólum úr öllum landsfjórðungum og sækjast eftir inngöngu í 17 mismunandi námsleiðir við öll fræðasvið skólans. 

Styrkhafarnir eru: Anna Chukwunonso Eze, Arnar Huginn Ingason, Atli Fannar Franklín, Erla Marý Sigurpálsdóttir, Erla Sigríður Sigurðardóttir, Garðar Sigurðarson, Gísli Björn Helgason, Guðlaug Agnes Kristjánsdóttir, Guðrún Höskuldsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Hákon Örn Grímsson,  Helga Margrét Höskuldsdóttir, Inga Guðrún Eiríksdóttir, Ísak Valsson, Jakob van Oosterhout, Karen Sif Jakobsdóttir, Kinga Sofia Demény, Liina Björg Laas Sigurðardóttir, Magnea Haraldsdóttir, Ragnheiður Silja Kristjánsdóttir, Sigurður Smári Davíðsson, Sindri Magnússon, Snæþór Aðalsteinsson, Sólveig Hrönn Hilmarsdóttir, Sunna Þórarinsdóttir, Tanja Rasmussen, Thelma Dís Ágústsdóttir og Þóranna Hlíf Gilbertsdóttir.

Styrkirnir í ár eru veittir með stuðningi Aldarafmælissjóðs Háskóla Íslands og Happdrættis Háskóla Íslands. Stjórn Afreks- og hvatningarsjóðs stúdenta Háskóla Íslands skipa Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor kennslu og þróunar sem er formaður, Börkur Hansen, prófessor við Uppeldis- og menntunarfræðideild, og Ólafur Pétur Pálsson, prófessor við Iðanaðarverkfræði-, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild.

Nánari upplýsingar um styrkhafa.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is