Háskóli Íslands

Umsóknarfrestur um styrk úr Sagnfræðisjóði dr. Björns Þorsteinssonar er 29. apríl

Hér er að finna upplýsingar um styrki fyrir nemendur og starfsfólk Háskóla Íslands

Umsóknarfrestur um styrki úr STAFN: Styrktarsjóði Brynju Einarsdóttur og Arnar Almarssonar er til 6. maí.

Styrkir í boði

Nemendum, kennurum og starfsfólki Háskóla Íslands standa til boða styrkir úr sjóðum sem starfræktir eru við Háskólann.

Annars vegar er um að ræða sjóði sem veita styrki til rannsókna, einkum til doktorsnema og fræðimanna við skólann.

Hins vegar eru Styrktarsjóðir Háskóla Íslands en þar er að finna ríflega sextíu sjóði og gjafir sem ánafnaðar hafa verið Háskólanum frá stofnun hans. Flestir sjóðanna starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, sem ætlar þeim að úthluta styrkjum og viðurkenningum til ýmissa verkefna nemenda, kennara og vísindamanna.
 

Minningarkort

Minningarkort til styrktar rannsóknum og vísindastarfi við Háskóla Íslands.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is