Háskóli Íslands

Tíu styrkir verða veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands

Tíu styrkir verða veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands 16. júní nk. Um er að ræða styrki til nemenda sem náð hafa afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands.

Styrkirnir í ár eru veittir með stuðningi Happdrættis Háskóla Íslands. Hver styrkur nemur 300.000 krónum auk niðurfellingar skráningargjalds í Háskólann, sem er 45.000 krónur.  Þetta er í þriðja sinn sem styrkir eru veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta við Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður árið 2008.

Umsóknarfrestur um styrki úr Afreks- og hvatningarsjóðnum fyrir þetta ár rennur út 5. júní nk.Stjórn sjóðsins velur styrkhafana en við valið er einkum tekið mið af framúrskarandi námsárangri á stúdentsprófi.  Einnig er horft til virkni í félagsstörfum og árangurs stúdenta á öðrum sviðum s.s. í listum og íþróttum.Háskóli Íslands er stærsti og elsti háskóli landsins og jafnframt sá skóli sem býður upp á mesta fjölbreytni í námsvali.  

Háskóli Íslands menntar Íslendinga til að takast á við krefjandi störf í framtíðinni og stuðlar þannig að bættum lífskjörum á Íslandi. Í Háskólanum eru stúdentar hvattir til að víkka sjóndeildarhringinn og nýta hæfileika sína til fulls.Helstu upplýsingar um sjóðinn, umsóknarfrest o.fl. er að finna á vef Háskóla Íslands.

Frekari upplýsingar um styrki og styrkveitingar veitir G.Ingibjörg Arnardóttir, starfsmaður vísindasviðs Háskóla Íslands, gia@hi.is, sími 525-5488.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is