Háskóli Íslands

Ingjaldssjóður

Tilgangur Ingjaldssjóðs helgast af fyrirmælum sem sett voru fram í erfðaskrá Ingjalds Hannibalssonar. Sjóðurinn skal styrkja efnilega nemendur Háskóla Íslands til framhaldsnáms erlendis í rekstrarstjórnun, alþjóðlegum viðskiptum eða nemendur í tónlist.

Ingjaldssjóður er stofnaður af Háskóla Íslands til minningar um Ingjald Hannibalsson, prófessor við Viðskiptafræðideild skólans, f. 17. nóvember 1951, d. 27. október 2014.  Ingjaldur arfleiddi háskólann að öllum eigum sínum. Rektor Háskóla Íslands hefur yfirumsjón með sjóðnum.

Ingjaldur var sonur Hólmfríðar Ingjaldsdóttir kennara og Hannibals Valdimarssonar ráðherra. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1971, prófi í eðlisfræði og stærðfræði frá HÍ 1974, M.Sc. prófi 1975 og Ph.D. prófi 1978 í iðnaðarverkfræði frá Ohio State University. Ingjaldur starfaði á áttunda áratugnum sem stundakennari við MR. Hann starfaði sem aðstoðarkennari og við rannsóknir meðan á dvöl hans við Ohio State University stóð. Hann varð deildarstjóri tæknideildar Félags íslenskra iðnrekenda þegar hann kom heim úr námi.

Árið 1978 hóf Ingjaldur stundakennslu við Háskóla Íslands og varð fastráðinn dósent árið 1982, lengst af í hlutastarfi. Á níunda áratugnum sinnti hann öðrum störfum og var m.a. forstjóri Iðntæknistofnunar, forstjóri Álafoss og framkvæmdastjóri Útflutningsráðs Íslands. Árið 1993 kom hann í fullt starf í Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands og varð prófessor við skólann árið 1997. Ingjaldur sinnti mörgum trúnaðarstörfum í gegnum tíðina innan Háskóla Íslands m.a. sem skorarformaður og deildarforseti Viðskipta- og hagfræðideildar, síðar Viðskiptafræðideildar. Hann var formaður fjármálanefndar Háskólans, framkvæmdastjóri rekstrar- og framkvæmdasviðs skólans og sinnti þar margvíslegum nefndarstörfum. Ingjaldur sat einnig í stjórnum fyrirtækja og stofnana, í ráðgjafanefndum og faglegum dómnefndum.

Ingjaldur var heimshornaflakkari og þegar hann lést hafði hann nýlokið því markmiði að heimsækja öll 193 þátttökulönd Sameinuðu þjóðanna. Það verkefni sem tók 49 ár en síðustu 63 löndin heimsótti hann í 10 heimsreisum sem hann skipulagði á árunum 2005-2014.

Stjórn sjóðsins:

Rektor Háskóla Íslands fer með yfirumsjón sjóðsins skv. skipulagsskrá.

Stjórn sjóðsins er skipuð til þriggja ára í senn. Í henni sitja:

  • Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor og formaður stjórnar
  • Karólína Eiríksdóttir tónskáld
  • Þórður Sverrisson viðskiptafræðingur

Skipulagsskrá (pdf.)

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is