Háskóli Íslands

Minningarsjóður Aðalsteins Kristjánssonar til eflingar náttúruvísindum og efnafræði

Tilgangur sjóðsins er að veita styrki stúdentum og kandídötum er leggja stund á náttúruvísindi (þar á meðal og án þess að talning sé tæmandi í lífeðlisfræði, líffræði, eðlisfræði, jarðfræði, grasafræði, efnafræði, jarðeðlisfræði og haffræði), svo og kennurum og rannsóknarmönnum við Háskóla Íslands á greindum vísindasviðum til einstakra rannsóknarverkefna. Veita má stúdentum og kandídötum styrki, þótt þeir nemi við erlenda háskóla, sérstaklega í Kanada eða Bandaríkjunum, og stúdentar eða kandídatar frá þeim löndum, sem stunda nám við Háskóla Íslands í framangreindum fræðum, geta einnig notið styrkja.

Sjóðurinn var stofnaður 1978 með dánargjöf Aðalsteins Kristjánssonar, er bjó lengstum í Winnipeg í Kanada og síðast í Puente, Los Angeles, Kaliforníu, en Aðalsteinn lést hinn 14. júlí 1949. 

Stjórn sjóðsins:

Aðalmenn:

  • Sigurður S. Snorrason, prófessor, Líf- og umhverfisvísindadeild
  • Árný Erla Sveinbjörnsdóttir, vísindamaður, Jarðvísindastofnun
  • Einar Örn Sveinbjörnsson, prófessor, Raunvísindadeild

Varamenn:

  • Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor, Jarðvísindadeild
  • Snædís Huld Björnsdóttir, dósent, Líf- og umhverfisvísindadeild
  • Snorri Þór Sigurðsson, prófessor, Raunvísindadeild

Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og hefur sjálfstætt starfandi stjórn.

Skipulagsskrá (.pdf).
 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is