Ingibjörg Tómasdóttir, doktorsnemi í hjúkrunarfræði, hefur hlotið styrk úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur við Háskóla Íslands til doktorsrannsóknar sem miðar að því að rannsaka stöðu mænuskaðaðra á Íslandi. Styrkurinn nemur 700.000 krónum.
Á Íslandi verða árlega 6-10 einstaklingar fyrir mænuskaða sem krefst sérhæfðrar endurhæfingar og eftirfylgni á Grensásdeild Landspítala. Grensásdeild er eina stofnun landsins sem veitir sérhæfða þjónustu fyrir fullorðna með mænuskaða. Þeir sem verða fyrir slíkum skaða glíma oft við flókna fylgikvilla sem hafa djúpstæð áhrif á daglegt líf og lífsgæði þeirra.
Doktorsverkefni Ingibjargar byggist á blandaðri aðferðafræði og hefur umfangsmiklum gögnum verið safnað frá 135 einstaklingum sem gengust undir endurhæfingu og eftirfylgni á Landspítala á árunum 1999-2024. Niðurstöður bentu til þess að dýpka þyrfti þekkingu á lykilþáttum eins og þvag- og hægðastjórnun, verkjum, síspennu, þrýstingssárum og hreyfingu. Til að öðlast innsýn í reynslu sjúklinga og þeirra aðferðir til að takast á við þessar áskoranir voru tekin viðtöl við tuttugu einstaklinga með alvarlega fylgikvilla mænuskaða.
Gagnaöflun er nú lokið og unnið er að samþættingu eigindlegra og megindlegra niðurstaðna. Markmiðið í heild sinni er að varpa ljósi á þekkingu sem getur bætt meðferð, lífsgæði og reynslu þeirra sem lifa með mænuskaða auk þess að veita heilbrigðisstarfsfólki mikilvægar vísbendingar um æskilegar áherslur í meðferð. Rannsóknin lofar góðu um nýjar leiðir sem má nota í þjónustu við mænuskaðaða einstaklinga og munu niðurstöðurnar hafa áhrif út fyrir landsteinana.
Leiðbeinendur eru Marianne E. Klinke og Helga Jónsdóttir, prófessorar við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild. Í doktorsnefnd situr einnig Páll E. Ingvarsson læknir, taugasérfræðingur og klínískur dósent við Læknadeild.
Um Rannsóknarsjóð Ingibjargar R. Magnúsdóttur
Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur var stofnaður árið 2007. Sjóðurinn eflir rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og veitir styrki til rannsóknaverkefna sem samræmast markmiðum hans. Ingibjörg R. Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðingur og stofnandi sjóðsins, var námsbrautarstjóri í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Hún var einn ötulasti talsmaður þróunar hjúkrunarmenntunar á Íslandi og ein þeirra sem stóð að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 1973.
Hægt er að styrkja sjóðinn með ýmsu móti, t.d. með gjöfum í tilefni árgangaafmæla eða útskriftar. Einnig er hægt að senda minningarkort og tækifæriskort frá sjóðnum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 0513-26-004057. Kennitala Styrktarsjóða HÍ er 571292-3199.
Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem ánafnaðar hafa verið Háskóla Íslands allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja við ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta og starfsfólk. Sjóðirnir eru mikil lyftistöng fyrir háskólann, sem hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga í gegnum tíðina en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.