Háskóli Íslands

Nýr styrktarsjóður við Háskóla Íslands - Styrktarsjóður Erlendar Haraldssonar

Nýr styrktarsjóður hefur verið stofnaður við Háskóla Íslands, Styrktarsjóður Erlendar Haraldssonar. Stofnskrá sjóðsins var undirrituð í dag af Kristínu Ingólfsdóttur rektor og Erlendi Haraldssyni, stofnanda sjóðsins.

Tilgangur Styrktarsjóðs Erlendar Haraldssonar er að styrkja rannsóknir á dulrænum fyrirbærum og meintri dulrænni reynslu í anda þeirra rannsókna sem Erlendur Haraldsson sinnti á starfsferli sínum. Einnig má styrkja rannsóknir í heilsusálfræði, trúarlífssálfræði og skyldum greinum. Þá má verðlauna nemendur fyrir sérlega athyglisverð fullunnin verkefni á þessum sviðum. Styrkir verða veittir til rannsóknaverkefna sem falla að tilgangi sjóðsins og skulu styrkþegar vera kennarar við Háskóla Íslands, fræðimenn innan og utan skólans – og nemendur í meistara- eða doktorsnámi við Háskóla Íslands.

Dr. Erlendur Haraldsson, sálfræðingur og prófessor, starfaði við Háskóla Íslands frá 1974 til 1999. Hann kenndi lengstum námskeið um tilraunasálfræði, sálfræðileg próf og aðferðafræði og var mikilvirkur rannsóknarmaður. Stór hluti rannsókna Erlendar fjallar á einn eða annan hátt um svonefnd dulræn fyrirbæri eða meinta dulræna reynslu og fólust í tilraunum, könnunum og vettvangsrannsóknum. Áður höfðu sinnt slíkum rannsóknum við Háskóla Íslands þeir Ágúst H. Bjarnason prófessor í heimspekideild, Guðmundur Hannesson, prófessor í læknadeild og Haraldur Níelsson, prófessor í guðfræðideild.

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem ánafnaðar hafa verið Háskóla Íslands, allt frá stofnun skólans. Flestir starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja við ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is