Háskóli Íslands

Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur - Styrkir til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum við HÍ

Ákveðið hefur verið að veita styrk úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur í byrjun október 2010. Um er að ræða styrk til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum við Háskóla Íslands. Möguleg heildarupphæð styrks er 1 milljón króna.

Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og verða veittir styrkir til rannsóknaverkefna hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi, sem falla að markmiðum sjóðsins.

Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er til 1. september 2010 og er val styrkhafa í höndum stjórnarmanna. Stjórn sjóðsins skipa Sóley S.Bender, formaður stjórnarinnar og stjórnarformaður Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði, Stefán Bragi Bjarnason lögfræðingur, Helga Gottfreðsdóttir lektor, Aðalbjörg J. Finnbogadóttir hjúkrunarfræðingur og Sigurjón Ingi Haraldsson, fulltrúi heilbrigðisráðuneytis.

Rafræn umsóknareyðublöð er að finna á heimsíðu Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði: www.rsh.hi.is.

Þetta er í þriðja sinn sem styrkur er veittur úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur en sjóðurinn var stofnaður sem einn af Styrktarsjóðum Háskóla Íslands í júlí árið 2007. Áður hefur verið úthlutað úr sjóðnum, árið 2008 og 2009. Styrkhafar árið 2008 voru Jóhanna Bernharðsdóttir og Eydís Sveinbjarnardóttir, doktorsnemar í hjúkrunarfræði við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Styrkhafar árið 2009 voru Dr. Helga Gottfreðsdóttir, ljósmóðir og lektor við Hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands og doktorsneminn Þorbjörg Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og lektor við Háskólann á Akureyri.

Ingibjörg R. Magnúsdóttir er fyrrverandi námsbrautarstjóri í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Hún hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar hjúkrunarmenntunar á Íslandi og var ein þeirra sem stóð að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 1973.

Hægt er að styrkja sjóðinn með ýmsu móti t.d. með gjöfum í tilefni árgangaafmæla eða útskriftar. Einnig er hægt að senda minningarkort og tækifæriskort frá sjóðnum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 0513-26-004057. Kennitala Styrktarsjóðanna HÍ er 571292-3199.

Frekari upplýsingar um styrki og styrkveitingar veitir Sigrún Ólafsdóttir, verkefnastjóri RSH, sigrunol@hi.is, sími 525-5280.
 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is