Háskóli Íslands

Styrkir til doktorsnáms og nýdoktora í ljósmóður- og hjúkrunarfræði

Minningarsjóður Bjargar Magnúsdóttur ljósmóður og Magnúsar Jónassonar bónda auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Markmið og hlutverk sjóðsins er að styrkja ljósmæður og hjúkrunarfræðinga til framhaldsnáms. Hjúkrunarfræðingar sem lokið hafa meistaranámi í ljósmóðurfræði og hafa ljósmóðurleyfi skulu hafa forgang umfram aðra hjúkrunarfræðinga um styrk úr sjóðnum. Styrkir eru veittir til doktorsnáms og/eða til nýdoktora. Nýdoktorar skulu hafa lokið doktorsprófi á síðastliðnum sjö árum (janúar 2016 - júlí 2022). 

Umsóknarfrestur er til 13. nóvember 2023.

Heildarfjárhæð styrks er allt að fjórar milljónir króna.

Í umsókn um styrk þurfa eftirtalin atriði að koma fram: 

  • Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
  • Helstu atriði úr náms- og starfsferli og ritaskrá umsækjenda/leiðbeinanda síðastliðin 5 ár.
  • Heiti og lýsing á rannsóknarverkefni, markmið, aðferðir og vísindalegt gildi (að hámarki 1000 orð). Ítarlegri rannsóknaráætlun má fylgja með sem fylgiskjal.
  • Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, að hámarki 150 orð, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk.
  • Tímaáætlun, fjárhagsáætlun og helstu samstarfsaðilar verkefnisins.
  • Hvernig styrkurinn verði notaður.
  • Annar fjárhagslegur stuðningur.
  • Nöfn, símanúmer og netföng þeirra sem leita má til um meðmæli.
  • Hámarkslengd umsóknar er þrjár síður fyrir utan fylgiskjöl.  Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti. 

Áhersla er lögð á vönduð fræðileg vinnubrögð við gerð umsóknar. Gert er ráð fyrir að styrkþegi skili sjóðnum skýrslu með helstu niðurstöðum og árangri af verkefninu þegar því lýkur. 

Áætlað er að úthlutun fari fram við hátíðlega athöfn í lok janúar 2024.

Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands: sjodir@hi.is.

Hægt er að styrkja sjóðinn með frjálsum framlögum, t.d. í tilefni brautskráningar eða árgangsafmæla. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Landsbankanum, 0111-26-5712, og merkja innborgunina sjóðnum. Kennitala Styrktarsjóða HÍ er 571292-3199.

Frekari upplýsingar er að finna á sjóðavef Háskóla Íslands. Einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, umsjónarmaður Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is, sími 525-5894. 

Um sjóðinn
Sjóðurinn var stofnaður við Háskóla Íslands 22. desember 2008 samkvæmt fyrirmælum í erfðaskrá Soffíu Þuríðar Magnúsdóttur, til minningar um foreldra hennar, Björgu Magnúsdóttur ljósmóður og Magnús Jónasson bónda sem bjuggu allan sinn búskap í Túngarði á Fellsströnd í Dölum. Björg var þar umdæmisljósmóðir árabilið 1910-1951. 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is