Háskóli Íslands

Styrkir til námsdvalar í Japan og á Íslandi

Ákveðið hefur verið að óska eftir umsóknum um styrki úr Watanabe-styrktarsjóðnum við Háskóla Íslands og er þetta í fyrsta skipti sem veitt er úr sjóðnum. Um er að ræða styrki til nemenda sem vilja stunda hluta af námi sínu á Íslandi eða í Japan en tilgangur sjóðsins er að veita styrki til námsdvalar í þessum löndum, bæði nemendum í grunn- og framhaldsnámi, auk þess að stuðla að kennaraskiptum.

Umsóknarfrestur um styrkina er til 15. nóvember 2010.

Val á styrkhöfum í höndum stjórnarmanna. Íslendingar sem skráðir eru í Háskóla Íslands og hyggjast stunda hluta námsins við japanskan háskóla geta sótt um styrk og einnig Japanar sem skráðir eru í japanskan háskóla og hyggjast stunda hluta af námi sínu við Háskóla Íslands.

Sjóðurinn getur styrkt allt að 12 mánaða dvöl við Háskóla Íslands eða við japanskan háskóla. Dvalartíminn á að vera á skólaárinu 2011-2012.
Stykir verða veittir fyrir kostnaði við uppihald og verða þeir í formi mánaðarlegra greiðslna.  Gert er ráð fyrir að hver styrkur verði 200.000 ISK á mánuði vegna dvalar á Íslandi og 150.000 JPY á mánuði vegna dvalar í Japan. Sjóðurinn veitir ekki styrk fyrir flugfari, skólagjöldum eða öðrum kostnaði.

Sjóðurinn var stofnaður við Háskóla Íslands árið 2008 og er stofnun sjóðsins liður í því að styrkja mikilvæg fræðileg tengsl Íslands og Japans. Sjóðurinn veitir íslenskum stúdentum og vísindamönnum einstakt tækifæri til að nema og starfa í japönsku háskólasamfélagi og það sama gildir um japanska stúdenta og vísindamenn, sem eiga þess kost að koma hingað. Stofnun sjóðsins er ekki síður mikilvæg hvatning fyrir Háskóla Íslands að vinna að metnaðarfullu langtímamarkmiði skólans um að komast í hóp fremstu háskóla heims. Þáttur í því markmiði er að auka rannsóknir og fjölga doktorsnemum en í stefnu Háskóla Íslands til 2011 er m.a. lögð áhersla á eflingu hágæðarannsókna og framhaldsnáms.

Toshizo Watanabe, sem lagði fram stofnfé sjóðsins, er frumkvöðull og stofnandi Nikken-fyrirtækisins, sem hefur höfuðstöðvar í Bandaríkjunum. Á yngri árum var hann nemi við Brandeis-háskólann í Waltham í Massachusettes í Bandaríkjunum og kynntist þar Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Watanabe fékk styrk til námsins í Bandaríkjunum og var ævinlega þakklátur þeim sem studdu hann til náms. Við undirritun stofnskrár sjóðsins sagðist Watanabe vilja gjalda fyrir aðstoðina með því að setja sjálfur á fót sjóð til að styrkja ungt fólk til náms erlendis. Hann hafði því samband við Geir Haarde, gamlan skólabróður sinn, með það í huga að stofna sjóð við íslenskan háskóla.

Stjórn sjóðsins skipa Már Másson, prófessor í lyfjaefnafræði, sem jafnframt er formaður stjórnar, Toshizo „Tom“ Watanabe, stofnandi sjóðsins, og Ingimundur Sigfússon.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á heimasíðu Watanabe styrktarsjóðsins við Háskóla Íslands

Umsóknir skulu vera ritaðar á ensku og sendar á rafrænu formi á tölvupóstfangið sjodir@hi.is.

 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is