Háskóli Íslands

Styrkir til námsdvalar í Japan og á Íslandi

(English below)

Óskað er eftir umsóknum um styrki úr Watanabe-styrktarsjóðnum við Háskóla Íslands og er þetta í annað skipti sem veitt er úr sjóðnum. Um er að ræða styrki til nemenda sem vilja stunda hluta af námi sínu á Íslandi eða í Japan en tilgangur sjóðsins er að veita styrki til námsdvalar í þessum löndum. Styrkirnir standa bæði nemendum í grunn- og framhaldsnámi til boða, auk þess sem sjóðnum er ætlað að stuðla að kennaraskiptum.

Umsóknarfrestur um styrkina er til 30. nóvember og er val á styrkhöfum í höndum stjórnarmanna. Íslendingar sem skráðir eru í Háskóla Íslands og hyggjast stunda hluta námsins við japanskan háskóla geta sótt um styrk og einnig Japanar sem skráðir eru í japanskan háskóla og hyggjast stunda hluta af námi sínu við Háskóla Íslands.

Styrkir verða veittir fyrir kostnaði við uppihald og verða þeir í formi mánaðarlegra greiðslna. Gert er ráð fyrir að hver styrkur verði 200.000 ISK á mánuði vegna dvalar á Íslandi og 150.000 JPY á mánuði vegna dvalar í Japan. Sjóðurinn veitir ekki styrk fyrir flugfari, skólagjöldum eða öðrum kostnaði.
Sjóðurinn getur styrkt allt að 6 mánaða dvöl nemenda sem stunda nám á BS-/BA-stigi og allt að 9 mánaða dvöl stúdenta sem stunda nám á MS-/MA-, doktors- eða nýdoktorsstigi. Dvalartíminn á að vera á skólaárinu 2012-2013.

Watanabe-styrktarsjóðurinn var stofnaður við Háskóla Íslands árið 2008 og er liður í því að styrkja mikilvæg fræðileg tengsl Íslands og Japans. Sjóðurinn veitir íslenskum stúdentum og vísindamönnum einstakt tækifæri til að nema og starfa í japönsku háskólasamfélagi og það sama gildir um japanska stúdenta og vísindamenn, sem eiga þess kost að koma hingað. Stofnun sjóðsins er ekki síður mikilvæg hvatning fyrir Háskóla Íslands að vinna að metnaðarfullu langtímamarkmiði skólans um að komast í hóp fremstu háskóla heims.

Toshizo Watanabe, sem lagði fram stofnfé sjóðsins, er frumkvöðull og stofnandi Nikken-fyrirtækisins, sem hefur höfuðstöðvar í Bandaríkjunum. Á yngri árum var hann nemi við Brandeis-háskólann í Waltham í Massachusettes í Bandaríkjunum og kynntist þar Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Watanabe fékk styrk til námsins í Bandaríkjunum og var ævinlega þakklátur þeim sem studdu hann til náms. Við undirritun stofnskrár sjóðsins sagðist Watanabe vilja gjalda fyrir aðstoðina með því að setja sjálfur á fót sjóð til að styrkja ungt fólk til náms erlendis. Hann hafði því samband við Geir Haarde, gamlan skólabróður sinn, með það í huga að stofna sjóð við íslenskan háskóla.

Stjórn sjóðsins skipa Már Másson, prófessor í lyfjaefnafræði, sem jafnframt er formaður stjórnar, Toshizo „Tom“ Watanabe, stofnandi sjóðsins, og Ingimundur Sigfússon.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á sjóðavef Háskóla Íslands, sjodir@hi.is og heimasíðu Watanabe-styrktarsjóðsins við Háskóla Íslands

Umsóknir skulu vera ritaðar á ensku og sendar á rafrænu formi á tölvupóstfangið sjodir@hi.is.

----------------------------------------------------------------------------------------

Scholarships for studies in Japan and Iceland
- Increased connection with the Japanese academic community

The Watanabe Trust Fund at the University of Iceland has announced that it is seeking applications from students who wish to obtain scholarships for studies abroad in Iceland or Japan. These will be the first scholarships offered by the Watanabe Trust Fund. The aim of the Watanabe Trust Fund is to encourage and assist students who would like carry out part of their under-graduate, or graduate studies in Iceland or Japan.

The application deadline is 30th of November 2011. The board of the fund will then choose recipients from the applications it has received. Icelanders who are registered with the University of Iceland and intend to carry out part of their studies in Japan, and vice versa Japanese students registered with a Japanese university who intend to carry out part of their studies with the University of Iceland are eligible for scholarships.

The grant is intended for living costs and will be in the form of monthly payments. The grant will be worth 200.000 ISK per/month for a Japanese student in Iceland, and 150.000 JPY per/month for an Icelandic student in Japan. The grant does not cover flights, university fees or other costs that might be incurred.
The fund can support undergraduate students (BS,BA or BEd) for up to 6 months. Graduate students (MS,MA, PhD or PostDoc) can be supported for up to 9 months. The period of stay shall be during the academic year 2012-2013.

The Watanabe Trust Fund was established at the University of Iceland in 2008 and plays a significant part in strengthening the academic ties between Iceland and Japan. The fund gives Icelandic students and academics a unique chance to study and work in at a Japanese university, and equally Japanese students and academics get the chance to study and work in Iceland. The establishment of the Trust Fund furthermore advances the University of Iceland’s ambitious long-term goal of becoming one of the world leading universities.

Mr. Toshizo Watanabe, who donated the founding contribution for the fund, is the founder, chairman, CEO & sole owner of Nikken, a successful international wellness products company, with its headquarters in the United States. As a young man he was an exchange student at the Brandeis University in Waltham, Massachusetts where he made the acquaintance of ex-prime minister, Geir H. Haarde. Mr. Watanabe was able to study in the United States due to a scholarship he received from the renowned Wien International Scholarship Program and is forever thankful to those who granted him this opportunity. On signing the Funds charter Mr. Watanabe stated that he wanted to show his gratitude for the assistance he received by setting up a fund himself to encourage and assist students to study abroad, and subsequently to strengthen the ties between Iceland and Japan. He contacted Geir H. Haarde, his former fellow student from the United States, with the intention to set up a trust fund in Iceland.

Current board members are:  Dr. Már Másson, chairman of the board, Mr Toshizo “Tom” Watanabe and Mr  Ingimundur Sigfússon.

For further information and application forms visit the website sjodir@hi.is and the Trust Fund’s website:  http://www.sjodir.hi.is/watanabe_trust_fund

The applications should be written in English and sent electronically to sjodir@hi.is.

The Watanabe Trust Fund

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is