Háskóli Íslands

Styrkir til verkefna sem styðja við íslenskunám fjöltyngdra barna

Íslenskusjóðurinn auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2021. Að þessu sinni eru styrkir veittir til rannsókna- og þróunarverkefna sem styðja við íslenskunám fjöltyngdra barna í leik- og grunnskólum. 
 
Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2021.
 
Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til að efla vald á íslensku máli barna og fullorðinna, einkum fjöltyngdra barna af erlendum uppruna og foreldra þeirra. Styrkir skulu veittir vegna verka sem styðja við og efla notkun á íslensku máli, svo sem þróunarverkefna, námskeiða og útgáfu, einkum á leik- og grunnskólastigi. Upplýsingar um Íslenskusjóðinn má nálgast á vefsíðu sjóðsins.
 
Heildarfjárhæð úthlutaðra styrkja er allt að kr. 2.000.000,- 
 
Í umsókninni þurfa eftirtalin atriði að koma fram: 
1.    Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
2.    Heiti verkefnis, markmið, vísindalegt og hagnýtt gildi. 
3.    Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, 2-3 málsgreinar, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk. 
4.    Veigameiri lýsing á verkefninu, ein blaðsíða að hámarki. Fram komi hvernig verkefninu er ætlað að auka við núverandi þekkingu á efninu og hvernig verkefnið samræmist markmiðum sjóðsins. Sé ætlunin að óska eftir stuðningi við hluta af stærra verkefni skal koma fram til hvaða þáttar sótt er um.
5.    Framkvæmdaáætlun með tímasetningum og greinargóðri lýsingu á framkvæmd verkefnisins.
6.    Sundurliðuð fjárhagsáætlun. Upplýsingar um annan fjárhagslegan stuðning við verkefnið.
7.    Yfirlit yfir helstu samstarfsaðila verkefnisins.
8.    Ferilskrá umsækjenda.
9.    Áætlun um kynningu niðurstaðna og sýnileika verkefnis.
 
Gert er ráð fyrir því að styrkþegi skili sjóðnum greinargerð um stöðu verkefnisins innan árs frá afhendingu styrks. 
 
Hámarkslengd umsóknar er þrjár síður auk ferilskrár. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.
 
Áætlað er að úthlutað verði á vormánuðum 2021.
 
Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands, sjodir@hi.is
 
Frekari upplýsingar er að finna á sjóðavef Háskóla Íslands eða hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnisstjóra Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is, sími 525-5894.
 
Um sjóðinn
Íslenskusjóðurinn er stofnaður af Elsu Sigríði Jónsdóttur og Tómasi Gunnarssyni til minningar um foreldra þeirra, þau Sigríði S. Sigurðardóttur og Jón Sigurðsson og Björgu Tómasdóttur og Gunnar Guðmundsson. Íslensk tunga var þeim hjartfólgin og vildu þau veg hennar sem mestan.
Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is