Háskóli Íslands

Styrkur til afburðanemanda í verkfræði

Úthlutað var úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu í dag, þriðjudaginn 21. desember. Styrkinn hlaut að þessu sinni Eiríkur Þór Ágústsson, BS-nemi í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands.

Styrkurinn fellur í skaut þeim verkfræðinema sem hæsta meðaleinkunn hefur eftir tvö fyrstu árin í grunnnámi en tilgangur sjóðsins er að styrkja efnilega stúdenta til framhaldsnáms í verkfræði.

Eiríkur Þór lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 2008. Foreldrar hans eru Ágúst Þór Eiríksson framkvæmdastjóri og Guðbjörg Þórisdóttir leikkona.

Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar Háskóla Íslands, á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952.

Stjórn sjóðsins skipa frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands og Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands.

Myndatexti: Eiríkur Þór Ágústsson, styrkhafi árið 2010, ásamt frú Vigdísi
Finnbogadóttur, Önnu Soffíu Hauksdóttur, sem er fyrsta konan sem fékk
styrk úr sjóðnum árið 1980 og Björn Kristinsson, prófessor emeritus, sem
fékk fyrstur styrkinn árið 1952.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is