Háskóli Íslands

Styrkur til meistara- og doktorsnema til rannsókna á einelti

Styrktarsjóður Margaretar og Bents Schevings Thorsteinssonar auglýsir eftir umsóknum

Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Styrktarsjóði Margaretar og Bents Schevings Thorsteinssonar á árinu 2014. Að þessu sinni verður styrkur veittur til nemenda í meistaranámi og/eða doktorsnámi.

Umsóknarfrestur er 31. mars 2014.

Markmið sjóðsins er að styðja rannsóknir á einelti og kanna allar lagalegar og siðferðilegar leiðir til að koma í veg fyrir einelti og bæta fyrir afleiðingar þess. Styrkir verða veittir til rannsókna sem falla að markmiðum sjóðsins.

Heildarfjárhæð úthlutaðra styrkja er allt að kr. 800.000.

Í umsókninni þurfa eftirtalin atriði að koma fram:
1.    Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
2.    Helstu atriði úr náms- og starfsferli umsækjanda og upplýsingar um námsárangur.
3.    Heiti rannsóknaverkefnisins, markmið og vísindalegt gildi þess. Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, 2-3 málsgreinar, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar hljóti verkefnið styrk.
4.    Veigameiri lýsing á rannsóknaverkefninu, ein blaðsíða að hámarki. Fram komi hvernig verkefninu er ætlað að auka við núverandi þekkingu á efninu og hvernig verkefnið samræmist markmiðum sjóðsins. Sé ætlunin að óska eftir stuðningi við hluta af stærra verkefni skal koma fram til hvaða þáttar sótt er um.
5.    Áætlun um námsframvindu, tímaáætlun, fjárhagsáætlun og yfirlit yfir helstu samstarfsaðila í verkefninu. Upplýsingar um annan fjárhagslegan stuðning við verkefnið komi einnig fram.
6.    Nöfn, símanúmer og netföng þeirra sem leita má til um meðmæli.
Gert er ráð fyrir því að styrkþegi skili sjóðnum greinargerð um stöðu verkefnisins innan árs frá afhendingu styrks.

Hámarkslengd umsóknar er þrjár síður. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.

Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands, sjodir@hi.is. Áætlað er að úthlutað verði á vormánuðum 2014.

Styrktarsjóður Margaretar og Bents Schevings Thorsteinssonar var stofnaður af þeim hjónum við Háskóla Íslands árið 2001. Þetta er þriðji sjóðurinn sem Bent Scheving Thorsteinsson stofnar við háskólann. Hinir tveir eru Verðlaunasjóður Óskars Þórðarsonar læknis, sem styrkir rannsóknir á sviði barnalækninga, og Verðlaunasjóður Bergþóru og Þorsteins Schevings Thorsteinssonar til styrktar rannsóknum í lyfjafræði.

Frekari upplýsingar um styrkveitingu og úthlutun veitir HelguaBrá Árnadóttur, verkefnisstjóri Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is, sími 525-5894525-5894.

 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is