Háskóli Íslands

Verðlaunaðar fyrir frábæran árangur í stærðfræði

Svala Sverrisdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir, nemendur í stærðfræði við Háskóla Íslands, hafa hlotið viðurkenningu úr Verðlaunasjóði Sigurðar Helgasonar prófessors fyrir frábæran námsárangur og er þetta í fimmta skipti sem úthlutað er úr sjóðnum. Verðlaunin nema 12.000 dollurum, jafnvirði rúmlega 1,5 milljónum króna, og fær hvor verðlaunahafi helming þeirrar upphæðar. 
 
Svala og Vigdís eru báðar nemendur á þriðja ári í stærðfærði við Háskóla Íslands. Þær hafa sýnt framúrskarandi árangur með því að ljúka næstum öllum námskeiðum á fyrstu tveimur námsárunum með einkunn 10. 
 
Svala útskrifaðist úr Menntaskólanum í Reykjavík vorið 2019 og hefur nú lokið tveimur árum í stærðfræði við Raunvísindadeild Háskóla Íslands með áherslu á reiknifræði. Svala fer í skiptinám við University of California í Berkeley í vor og stefnir síðan á framhaldsnám í Bandaríkjunum næsta haust.
 
Vigdís útskrifaðist úr Menntaskólanum í Reykjavík vorið 2019 og hefur einnig lokið tveimur árum í stærðfræði við Raunvísindadeild Háskóla Íslands með áherslu á eðlisfræði. Hún er núna í skiptinámi við University of British Columbia í Kanada og stefnir á að ljúka BS-gráðu hér heima í vor.
 
Um Verðlaunasjóð Sigurðar Helgasonar prófessors
Verðlaunasjóður Sigurðar Helgasonar veitir viðurkenningar til stærðfræðinema og nýútskrifaðra stærðfræðinga fyrir góðan árangur og styrkir þá til frekari afreka í námi og rannsóknum.
 
Stofnandi sjóðsins er Sigurður Helgason, prófessor í stærðfræði við MIT í Boston. Sigurður fæddist á Akureyri 30. september 1927 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1945. Eftir árs nám við verkfræðideild Háskóla Íslands hélt Sigurður til Danmerkur og lauk Mag.Scient.-prófi í stærðfræði 1952 frá Kaupmannahafnarháskóla. Hann hélt þá til frekara náms við Princeton-háskóla í Bandaríkjunum og lauk þaðan doktorsprófi 1954 og kenndi síðan við Tækniháskóla Massachusetts (MIT), Princeton-háskóla, Chicago-háskóla og Columbia-háskóla. Sigurður varð prófessor við MIT árið 1965 og eftir hann liggja fjölmargar bækur og vísindagreinar um stærðfræði. Hann hefur verið heiðursdoktor við Háskóla Íslands frá árinu 1986 og er heiðursfélagi Íslenska stærðfræðifélagsins.
 
Styrktarsjóðir á borð við Verðlaunasjóð Sigurðar Helgasonar eru mikil lyftistöng fyrir Háskóla Íslands. Skólinn hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga á undanförnum árum en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að hvetja nemendur skólans til dáða, efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.
 
Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk.
 
Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is