Háskóli Íslands

Verðlaunaður fyrir afburðaárangur í verkfræði við Háskóla Íslands

Ingvar Þóroddsson, BS-nemi á þriðja ári í rafmagns- og tölvuverkfræði við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents. Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og systir Þorvalds, afhenti styrkinn.
 
Sjóðurinn styrkir árlega efnilega nema í verkfræði við Háskóla Íslands til framhaldsnáms í verkfræði. Sá nemandi, sem er með hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í grunnnámi, hlýtur styrkinn hverju sinni. 
 
Ingvar lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 2018 og hlaut m.a. menntaverðlaun Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi og eftirtektarverðan árangur í listum og félagsstörfum. Hann hóf nám við Háskóla Íslands sama ár. Ingvar hefur verið virkur þátttakandi í félagsstarfi skólans og situr nú í Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands.  
 
Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar Háskóla Íslands. Árlega er veitt viðurkenning úr sjóðnum til afburðanemanda í verkfræði við Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952.
 
Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk.
Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is