Háskóli Íslands

Doktorsstyrkir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum

Stjórn Rannsóknasjóðs Ingibjargar R. Magnúsdóttur auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum. Heildarupphæð styrkja er 1,1 milljón.

Umsóknarfrestur er til 1. september 2014.

Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði.

Umsókn skal senda inn rafrænt.

Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum. Styrkir verða veittir til rannsóknaverkefna hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi við Háskóla Íslands, sem falla að markmiðum sjóðsins.

Úthlutun fer fram á degi Hjúkrunarfræðideildar í október 2014.

Nánari upplýsingar veitir Margrét Björnsdóttir, verkefnisstjóri Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði, margbjo@hi.is eða í síma 525-5280.

Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur var stofnaður 29. júní 2007 af Ingibjörgu R. Magnúsdóttur og Rannsóknarstofnun í hjúkrunarfræði. Ingibjörg var námsbrautarstjóri við hjúkrunarfræðideild háskólans og skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingarmálaráðuneytinu. Hún hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar hjúkrunarmenntunar á Íslandi og var ein þeirra sem stóð að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði árið 1973.
Aðrir sem lögðu til stofnfé voru Glitnir, Ljósmæðrafélag Íslands, heilbrigðis- og tryggingarmálaráðuneytið og ýmsir einstaklingar. Þá lagði Ingibjörg R. Magnúsdóttir fram viðbótarframlög við stofnfé sjóðsins á árinu 2008 og 2009.

Sjóðurinn starfar eftir staðfestri skipulagsskrá og hefur sjálfstæða stjórn.
 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is