Háskóli Íslands

Dr. Hákon Hákonarson lungnasérfræðingur barna hlýtur viðurkenningu úr sjóði Óskars Þórðarsonar barnalæknis

Úthlutað var í annað sinn úr Verðlaunasjóði Óskars Þórðarsonar barnalæknis 20. september 2002.

Verðlaunasjóður Óskars Þórðarsonar læknis veitti öðru sinni viðurkenningu fyrir vísindaleg afrek á sviði barnalækninga hinn 20. September 2002. Hana hlaut dr. Hákon Hákonarson barnalæknir og sérfræðingur í lungnalækningum barna, fyrir rannsóknir á astma. Rannsóknarverkefni Hákonar eru annars vegar á sviði sameindalíffræði og hins vegar á sviði erfðarannsókna. Þær hafa staðið frá 1993 og í þeim er leitast við að finna erfðavísa sem orsaka astma þannig að hægt sé að þróa nýja og sértækari meðferð við astma á grunni rannsóknanna.

Rannsóknir á astma á sviði sameindalíffræði og erfðafræði
Hákon leiddi rannsóknir sem snúa að sameindalífræði astma við læknaháskólann í Pennsylvaníu frá 1993 til 1998. Í þeim eru kölluð fram astmaeinkenni hjá dýrum og leitað að breytileika í erfðavísum og starfsemi þeirra eggjahvítuefna sem þessi gen tjá og þau borin saman við samanburðarhóp sem ekki hefur einkenni um astma. Þær erfðafræðirannóknir sem Hákon stjórnar hjá Íslenskri erfðagreiningu snúa hins vegar að því að finna sameiginleg svæði í erfðamengi einstaklinga með astma og staðsetja þau gen og þann breytileika í þessum genum sem orsakar asthma. Rannsóknirnar gagnast því hvor annarri við að finna þau gen og eggjahvítuefni sem mestu máli skipta fyrir astma, sem er grundvöllur þess að þróa megi ný lyf.

Hákon er fæddur á Akureyri árið 1960, stundaði nám við Menntaskólann á Akureyri og brautskráðist frá Læknadeild Háskóla Íslands 1986. Hann lauk sérfræðiprófi í barnalækningum 1992 frá University of Connecticut og í lungnalækningum barna frá University of Pennsylvania School of Medicine árið 1996. Á liðnu vori varði Hákon doktorsritgerð sína sem fjallaði um ofangreindar rannsóknir við Læknadeild Háskóla Íslands. Hákon hefur leitt lungnarannsóknarsvið Íslenskrar erfðagreiningar frá 1998 og er þar yfirmaður lyfjafræðarannsókna og rannsóknasviðs bólgu- og sjálfsofnæmissjúkdóma. Jafnframt sinnir Hákon lungnalækningum við barnadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss. Hákon er kvæntur Maríu Björk Ívarsdóttur, grafískum hönnuði, og eiga þau börnin Ívar Örn, Sigrúnu Maríu og Sólveigu Helgu.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is