Styrkir úr Watanabe-styrktarsjóðnum við Háskóla Íslands voru afhentir við hátíðlega athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands í dag. Alls hlutu fimmtíu nemendur og fræðimenn frá Háskóla Íslands og japönskum háskólum styrki til náms og rannsókna í löndunum tveimur en samanlögð styrkupphæð nemur um 48 milljónum króna.
Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, afhenti styrkina ásamt Eiríki Smára Sigurðarsyni, rannsóknadósent við Hugvísindasvið og formanni stjórnar Watanabe-styrktarsjóðsins, sem jafnframt stýrði athöfninni. Einnig fluttu ávörp Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og sendiherra sem er stjórnarmaður í Watanabe-styrktarsjóðnum, og Keizo Takewaka, sendiherra Japans á Íslandi.
Stofnandi sjóðsins, Toshizo „Tom“ Watanabe, gat ekki verið viðstaddur athöfnina en ávarpaði styrkþega og gesti í myndbandi. Þar ræddi hann meðal annars um tilurð sjóðsins og mikilvægi hans fyrir sig persónulega. „Það hefur orðið eitt af mikilvægustu verkefnunum á lífsferli mínum að styðja við námsmöguleika fólks,“ sagði Watanabe og hvatti styrkhafa jafnframt til að nýta tækifærið vel: „Ég vona að hvert og eitt ykkar líti á styrkinn sem tækifæri til að taka stórt skref fram á við í lífinu.“
Ávarp Toshizo „Tom“ Watanabe má sjá hér í heild sinni.
Í ávörpum var lögð áhersla á mikilvægi alþjóðlegs samstarfs, menningarsamskipta og þeirrar reynslu sem felst í því að stunda nám og rannsóknir erlendis. Eiríkur Smári fór jafnframt yfir þróun sjóðsins frá stofnun hans, fjölgun styrkhafa, hlutfall nemenda og fræðimanna og dreifingu styrkja til náms og rannsókna við samstarfsskóla. Fram kom að þegar fyrst var veitt úr sjóðnum, árið 2011, hlutu þrír styrki, en fjöldi styrkþega hefur aukist ár frá ári og hlutu 51 styrk árið 2025 og 50 í ár.
Mikilvægur þáttur í samstarfi Íslands og Japans
Þetta er í sextánda sinn sem úthlutað er úr sjóðnum sem Toshizo Watanabe stofnaði árið 2008 með það að markmiði að styrkja fræðilegt samstarf Háskóla Íslands og Japans. Frá árinu 2011 hefur sjóðurinn veitt alls 292 styrki til nemenda og fræðimanna til náms og rannsókna.
Háskóli Íslands er nú í samstarfi við nítján háskóla í Japan og gegnir Watanabe-styrktarsjóðurinn þar mikilvægu hlutverki. Styrkir úr sjóðnum skapa nemendum og fræðimönnum tækifæri til náms, efla tengsl og byggja upp ný rannsóknaverkefni.
Á skólaárinu sem nú er að ljúka stunduðu 20 japanskir nemendur nám við Háskóla Íslands, ellefu þeirra í skiptinámi og níu á eigin vegum. Á sama tíma fóru nítján nemendur frá Háskóla Íslands í skiptinám til Japan og á næsta skólaári mun þeim fjölga í 25. Þá eru 68 nemendur skráðir í japönskunám við Háskólann sem endurspeglar þann mikla áhuga sem er á japanskri tungu og menningu meðal íslenskra nemenda.
Auglýst var eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum í upphafi árs og bárust sjóðnum 69 umsóknir að þessu sinni. Eftirtaldir hlutu styrki:
Grunnnemar sem hljóta styrki til skiptinámsdvalar við samstarfsskóla HÍ í Japan
- Adrian Roszkowski, BS-nemi í hugbúnaðarverkfræði, hlaut styrk til náms við Kyoto University.
- Alexander Þórisson Hraundal, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Ritsumeikan University.
- Ana Margarida Delgado Costa, BS-nemi í tölvunarfræði, hlaut styrk til náms við Waseda University.
- Anh Phuong Ðang, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Kansai Gaidai University.
- Aþena Ýr Ólafsdóttir, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Kwansei Gakuin University.
- Berglind Aya Iura, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Kyushu University.
- Dagmar Ýr Eyþórsdóttir, BS-nemi í tölvunarfræði, hlaut styrk til náms við International Christian University.
- Garðar Björgvinsson, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Kansai Gaidai University.
- Hjalti Freyr Hjaltason, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Kwansei Gakuin University.
- Hrafnhildur Kría Jónasdóttir, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við International Christian University.
- Jóhann Ástráðsson, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Osaka Gakuin University.
- Jón Karl Ngosanthiah Karlsson, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Shimane University.
- Kjartan Ásgeirsson, BS-nemi í verkfræðilegri eðlisfræði, hlaut styrk til náms við Waseda University.
- Lúkas Máni Gíslason, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Osaka Gakuin University.
- Margrét Kristjánsdóttir Wiium, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Sophia University.
- Mist Reykdal Magnúsdóttir, BS-nemi í efnafræði, hlaut styrk til náms við Kyoto University.
- Orri Alvar Vilhjálmsson, BS-nemi í viðskiptafræði með áherslu á fjármálahagfræði, hlaut styrk til náms við Sophia University.
- Seohyeon Jeong, BA-nemi í ensku, hlaut styrk til náms við International Christian University.
- Sigurdís Unnur Beck, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Gakushuin University.
- Sölvi Þorkelsson, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Kyoto Sangyo University.
- Sveinn Logi Pálsson, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Seinan Gakuin University.
- Viktor Már Eyjólfsson Ortega, BS-nemi í hagnýttri stærðfræði, hlaut styrk til náms við Nagoya University.
- Yifei Shen, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Ritsumeikan University.
Framhaldsnemar sem hljóta styrki til námsdvalar í Japan
- Annika Simonsen, doktorsnemi í tölvunarfræði, hlaut styrk til námsdvalar við University of Tokyo.
- Ashesh Abhisek Khatua, doktorsnemi í eðlisfræði, hlaut styrk til námsdvalar við Kavli IPMU, University of Tokyo.
- Auður Gréta Þórisdóttir hlaut styrk til meistaranáms í markaðsfræði við Kwansei Gakuin University.
- Elizaveta Petrovskaia, doktorsnemi í viðskiptafræði, hlaut styrk til námsdvalar við University of Tokyo.
- Rustam Balafendiev, doktorsnemi í eðlisfræði, hlaut styrk til námsdvalar við Kavli IPMU, University of Tokyo.
- Shefali Poojary, doktorsnemi í jarðeðlisfræði, hlaut styrk til námsdvalar við Kochi University.
- Wiktoria Magdalena Szaratkiewicz, doktorsnemi í umhverfisfræði, hlaut styrk til námsdvalar við Waseda University.
Japanskir grunnnemar sem hljóta styrki til skiptináms við Háskóla Íslands
- Kanon Okamoto, BA-nemi í menntavísindum við International Christian University.
- Sou Takahashi, BA-nemi í lögfræði við Kyoto University.
- Yuya Katsuta, BA-nemi í heimspeki við Waseda University.
Japanskir framhaldsnemar sem hljóta styrki til náms við Háskóla Íslands
- Akane Tsunoda, MIS-nemi í upplýsingafræði.
- Asuka Nakashizu, MIS-nemi í upplýsingafræði.
- Mashiho Kaneko, doktorsnemi í íslenskum bókmenntum.
- Renon Fukushima, MA-nemi í bókmenntafræði.
- Yu Yasuhira, MA-nemi í mannfræði.
- Yuriko Kobayashi, MS-nemi í jarðfræði.
Fræðimenn við Háskóla Íslands sem fá styrki til rannsóknadvalar í Japan
- Ásdís Arnalds, lektor við Félagsráðgjafardeild, hlýtur styrk til dvalar við Ritsumeikan University.
- Fridrik Magnus, rannsóknaprófessor við Raunvísindastofnun, hlýtur styrk til dvalar við Kyushu University.
- Karl Benediktsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, hlýtur styrk til dvalar við Hokkaido University.
- Sigrún Ólafsdóttir, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild, hlýtur styrk til dvalar við Ritsumeikan University.
- Þröstur Olaf Sigurjónsson, prófessor við Viðskiptafræðideild, hlýtur styrk til dvalar við Waseda University.
- Már Másson, prófessor við Lyfjafræðideild, hlýtur styrk til dvalar við Kyoto University.
- Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor við Stjórnmálafræðideild, hlýtur styrk til dvalar við Kansai University.
- Auður Arna Arnardóttir, prófessor við Viðskiptafræðideild, hlýtur styrk til dvalar við Waseda University.
Fræðimenn við japanska háskóla sem fá styrki til rannsóknadvalar við Háskóla Íslands
- Osama Eljamal, prófessor í umhverfisverkfræði við Kyushu University.
- Sabina Quader, vísindamaður við Innovative Center of NanoMedicine, Kawasaki Institute of Industrial Promotion.
- Go Ito, prófessor við School of Political Sciences and Economics við Meiji University.
Stjórn Watanabe styrktarsjóðsins skipa Eiríkur Smári Sigurðarson, rannsóknadósent við Hugvísindasvið og formaður stjórnar, Toshizo "Tom" Watanabe, stofnandi sjóðsins, og Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og sendiherra.