Styrkveiting Þórsteinssjóður 2025.

Þrír námsstyrkir hafa verið veittir úr Þórsteinssjóði til blindra og sjónskertra stúdenta við Háskóla Íslands. Þetta er í fjórtánda skipti sem styrkjum er úthlutað úr sjóðnum og nemur upphæð styrkjanna samtals 2,4 milljónum króna.

Megintilgangur Þórsteinssjóðs er að styrkja blinda og sjónskerta stúdenta til náms við Háskóla Íslands. Enn fremur er sjóðnum ætlað að efla rannsóknir sem auka þekkingu og skilning á lífi og aðstæðum blindra og sjónskertra einstaklinga og fjölga tækifærum þeirra til að auðga og efla líf sitt. Sérstök áhersla er lögð á styrki til rannsókna í félags- og hugvísindum sem falla að tilgangi sjóðsins. 

Námsstyrki í ár hljóta þrír nemendur við Háskóla Íslands. Það eru Kaisu Kukka-Maaria Hynninen, MT-nemi í kennslu list- og verkgreina við Menntavísindasvið, Laufey Ýr Gunnarsdóttir, BA-nemi í japönsku máli og menningu við Hugvísindasvið, og Theódór Helgi Kristinsson, BS-nemi í tölvunarfræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið.

Um sjóðinn
Þórsteinssjóður var stofnaður af Blindravinafélagi Íslands 6. desember 2006. Tilkoma hans eykur möguleika blindra og sjónskertra stúdenta til háskólanáms. Hlutverk og tilgangur Þórsteinssjóðs helgast af æviverki Þórsteins Bjarnasonar sem fæddist 3. desember árið 1900. Hann stofnaði Blindravinafélag Íslands 24. janúar 1932 og var það fyrsti vísir að félagi til stuðnings fötluðu fólki hér á landi. Þórsteinn helgaði líf sitt blindum og sjónskertum einstaklingum á Íslandi á síðustu öld án þess að þiggja nokkru sinni laun fyrir heldur lagði félaginu þvert á móti til fé úr eigin vasa.

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem ánafnaðar hafa verið skólanum allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk.

Styrkþegar og fulltrúar þeirra ásamt rektor Háskóla Íslands við úthlutun styrkjanna. Frá vinstri: Svandís Sturludóttir, deildarstjóri Nemendaráðgjafar HÍ, sem tók við styrknum fyrir hönd Theódórs Helga Kristinssonar, Laufey Ýr Gunnarsdóttir, Kaisu Kukka-Maaria Hynninen og Silja Bára Ómarsdóttir. MYND/Kristinn Ingvarsson
Styrkþegar og fulltrúar þeirra ásamt rektor Háskóla Íslands við úthlutun styrkjanna. Frá vinstri: Svandís Sturludóttir, deildarstjóri Nemendaráðgjafar HÍ, sem tók við styrknum fyrir hönd Theódórs Helga Kristinssonar, Laufey Ýr Gunnarsdóttir, Kaisu Kukka-M