Háskóli Íslands

Möguleikar á námi og rannsóknum í Japan

Óskað er eftir umsóknum um styrki úr Watanabe-styrktarsjóðnum við Háskóla Íslands.

Um er að ræða styrki til námsdvalar fyrir nemendur í HÍ á Íslandi eða í Japan og  ferða- og dvalarstyrki til nýdoktora, kennara og fræðimanna. Styrkirnir standa bæði nemendum í grunn- og framhaldsnámi til boða, auk þess sem sjóðnum er ætlað að stuðla að kennaraskiptum. Þetta er í fimmta sinn sem veitt er úr sjóðnum.

Umsóknarfrestur um styrkina er til 15. janúar 2015.

Nemendur sem skráðir eru í Háskóla Íslands og hyggjast stunda hluta af sínu námi við japanskan háskóla geta sótt um styrk. Einnig geta Japanir sem skráðir eru í japanskan háskóla og hyggjast stunda hluta af námi sínu við Háskóla Íslands sótt um. Þá geta starfsmenn Háskóla Íslands og starfsmenn japanskra háskóla og rannasóknastofnanna sótt um styrki úr sjóðnum. Val á styrkhöfum er í höndum stjórnarmanna.

Styrkir verða veittir fyrir kostnaði við uppihald í formi mánaðarlegra greiðslna. Gert er ráð fyrir að hver styrkur verði 200.000 ISK á mánuði vegna dvalar á Íslandi og 150.000 JPY á mánuði vegna dvalar í Japan. Styrkþegar sem dvelja lengur en einn mánuð fá einnig allt að 200.000 ISK í ferðastyrk. Sjóðurinn veitir ekki styrk fyrir skólagjöldum eða öðrum kostnaði. Nýdoktorar, kennarar og fræðimenn eiga líka kost á allt að 500.000 ISK styrk til styttri dvalar sem tengist fræðistörfum eða rannsóknasamstarfi milli Háskóla Íslands og mennta- eða fræðistofnanna í Japan.

Sjóðurinn getur styrkt allt að sex mánaða dvöl nemenda sem stunda nám á BS-/BA-/B.Ed.-stigi og allt að níu mánaða dvöl stúdenta sem stunda nám á MS-/MA-/BM.Ed., doktors- eða nýdoktorsstigi og einnig fræðimenn til rannsóknastarfa. Dvalartíminn á að vera á skólaárinu 2015-2016.

Umsóknir skulu vera ritaðar á ensku og sendar á rafrænu formi á tölvupóstfangið ask@hi.is.

Watanabe-styrktarsjóðurinn var stofnaður við Háskóla Íslands árið 2008 og er liður í því að styrkja fræðileg tengsl Íslands og Japans. Sjóðurinn veitir íslenskum stúdentum og vísindamönnum einstakt tækifæri til að nema og starfa í japönsku háskólasamfélagi og það sama gildir um japanska stúdenta og vísindamenn, sem eiga þess kost að koma hingað. Stofnun sjóðsins er ekki síður mikilvæg hvatning fyrir Háskóla Íslands að vinna að metnaðarfullu langtímamarkmiði skólans um að komast í hóp fremstu háskóla heims.

Toshizo Watanabe, sem lagði fram stofnfé sjóðsins, er frumkvöðull og stofnandi Nikken-fyrirtækisins, sem hefur höfuðstöðvar í Bandaríkjunum. Á yngri árum var hann nemi við Brandeis-háskólann í Waltham, Massachusettes, í Bandaríkjunum og kynntist þar Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Watanabe fékk styrk til námsins í Bandaríkjunum og var ævinlega þakklátur þeim sem studdu hann til náms. Við undirritun stofnskrár sjóðsins sagðist Watanabe vilja gjalda fyrir aðstoðina með því að setja sjálfur á fót sjóð til að styrkja ungt fólk til náms erlendis. Hann hafði því samband við Geir Haarde, gamlan skólabróður sinn, með það í huga að stofna sjóð við íslenskan háskóla.

Stjórn sjóðsins skipa Már Másson, prófessor í lyfjaefnafræði, sem jafnframt er formaður stjórnar, Toshizo „Tom“ Watanabe, stofnandi sjóðsins, og Ingimundur Sigfússon, fyrrverandi sendiherra.

Lokaskýrslur og frásögn fyrrverandi styrkhafa er að finna á heimasíðu sjóðsins.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á sjóðavef Háskóla Íslands og heimasíðu Watanabe-styrktarsjóðsins við Háskóla Íslands.

Einnig veitir Hafliði Sævarsson, verkefnastjóri á Skrifstofu alþjóðasamskipta, upplýsingar um sjóðinn. Sími 525-5264, netfang: haflidis@hi.is.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is