Háskóli Íslands

Möguleikar á námi og rannsóknum í Japan

Styrkir til náms- og rannsóknadvalar í Japan og á Íslandi

Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki úr Watanabe-styrktarsjóðnum við Háskóla Íslands en sjóðurinn hefur veitt styrki til námsdvalar fyrir nemendur í HÍ í Japan og japanska nemendur við HÍ. Einnig hafa verið veittir dvalarstyrkir til nýdoktora, kennara og fræðimanna. Styrkirnir standa bæði nemendum í grunn- og framhaldsnámi til boða, auk þess sem sjóðnum er ætlað að stuðla að kennaraskiptum. Watanabe-styrktarsjóðurinn hefur veitt styrkhöfum frábært tækifæri til að nema og/eða stunda rannsóknir hér á landi eða í Japan.

Umsóknarfrestur um styrkina er til 15. janúar 2016.

Lokaskýrslur og frásagnir fyrrverandi styrkhafa er að finna á heimasíðu sjóðsins: http://sjodir.hi.is/watanabesjodurinn
Nemendur sem skráðir eru í Háskóla Íslands og hyggjast stunda hluta af sínu námi við japanskan háskóla geta sótt um styrk. Einnig geta Japanir sem skráðir eru í japanskan háskóla og hyggjast stunda hluta af námi sínu við Háskóla Íslands sótt um. Þá geta starfsmenn Háskóla Íslands og starfsmenn japanskra háskóla og rannsóknastofnanna sótt um styrki úr sjóðnum. Val á

Styrkir verða veittir fyrir kostnaði við uppihald í formi mánaðarlegra greiðslna. Gert er ráð fyrir að hver styrkur verði 200.000 ISK á mánuði vegna dvalar á Íslandi og 150.000 JPY á mánuði vegna dvalar í Japan. Styrkþegar sem dvelja lengur en einn mánuð fá einnig allt að 200.000 ISK í ferðastyrk. Sjóðurinn veitir ekki styrk fyrir skólagjöldum eða öðrum kostnaði. Nýdoktorar, kennarar og fræðimenn eiga líka kost á allt að 500.000 ISK styrk til styttri dvalar sem tengist fræðistörfum eða rannsóknasamstarfi milli Háskóla Íslands og mennta- eða fræðistofnanna í Japan.

Sjóðurinn getur styrkt allt að sex mánaða dvöl nemenda sem stunda nám á BS-/BA-/B.Ed.-stigi og allt að níu mánaða dvöl stúdenta sem stunda nám á MS-/MA-/M.Ed., doktors- eða nýdoktorsstigi og einnig fræðimenn til rannsóknastarfa. Dvalartíminn á að vera á skólaárinu 2016-2017.

Umsóknir og fylgigögn skal senda í tölvupósti á ask@hi.is Athugið að umsóknir og fylgigögn eiga að vera á ensku.

Watanabe-styrktarsjóðurinn var stofnaður við Háskóla Íslands árið 2008 og er liður í því að styrkja fræðileg tengsl Íslands og Japans. Sjóðurinn veitir íslenskum stúdentum og vísindamönnum einstakt tækifæri til að nema og starfa í japönsku háskólasamfélagi og það sama gildir um japanska stúdenta og vísindamenn, sem eiga þess kost að koma hingað. Stofnun sjóðsins er ekki síður mikilvæg hvatning fyrir Háskóla Íslands að vinna að metnaðarfullu langtímamarkmiði skólans um að komast í hóp fremstu háskóla heims.

Toshizo Watanabe, sem lagði fram stofnfé sjóðsins, er frumkvöðull og einn af aðstandendum Nikken-fyrirtækisins sem hefur höfuðstöðvar í Bandaríkjunum. Á yngri árum var hann skiptinemi við Brandeis-háskólann í Waltham í Massachusettes í Bandaríkjunum og kynntist þar Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra Íslands. Watanabe fékk styrk til námsferðarinnar í Bandaríkjunum og var ævinlega þakklátur þeim sem studdu hann til náms. Við undirritun stofnskrár sjóðsins sagðist Watanabe vilja endurgjalda aðstoðina með því að setja sjálfur á fót sjóð til að styrkja ungt fólk til náms erlendis. Hann hafði því samband við Geir H. Haarde, gamla skólabróður sinn, með það í huga að stofna sjóð við íslenskan háskóla.

Stjórn sjóðsins skipa Már Másson, prófessor í lyfjaefnafræði, sem jafnframt er formaður stjórnar, Toshizo „Tom“ Watanabe, stofnandi sjóðsins, og Ingimundur Sigfússon, fyrrverandi sendiherra.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á heimasíðu Watanabe-styrktarsjóðsins við Háskóla Íslands: http://www.sjodir.hi.is/watanabe_styrktarsjodurinn_vid_haskola_islands á sjóðavef Háskóla Íslands, sjodir.hi.is.
Einnig veitir Hafliði Sævarsson, verkefnastjóri á Skrifstofu alþjóðasamskipta, upplýsingar um sjóðinn. Sími 525-5264, netfang: haflidis@hi.is.
 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is