Aldrei hafa fleiri hlotið styrki úr Watanabe-styrktarsjóðnum við Háskóla Íslands en í ár, en alls var 51 styrkur veittur við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands í dag. Þrjátíu og sex nemendur og fræðimenn við Háskóla Íslands og fimmtán nemendur og fræðimenn frá japönskum háskólum hljóta styrki til fjölbreytts náms og rannsókna en samanlögð styrkupphæð nemur um 35 milljónum króna.
Styrkþegar og fulltrúar þeirra veittu styrkjunum viðtöku á athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands í dag. Stofnandi sjóðsins, Toshizo Watanabe, átti því miður ekki heimangengt að þessu sinni. Jón Atli Benediktsson rektor stýrði athöfninni og afhenti styrkina ásamt Eiríki Smára Sigurðarsyni, rannsóknastjóra við Hugvísindasvið og formanni stjórnar Watanabe-styrktarsjóðsins. Þeir fluttu einnig stutt ávörp ásamt Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og sendiherra og stjórnarmanni í Watanabe-styrktarsjóðnum, og fulltrúa sendiherra Japans á Íslandi, Tomoko Daimaru. Öll brýndu þau fyrir styrkhöfum að njóta dvalarinnar sem allra best og vera meðvituð um þau tækifæri sem væru fólgin í að hljóta styrkinn og stunda nám eða rannsóknir við erlenda háskóla um tíma.
Þetta er í fimmtánda sinn sem styrkjum er úthlutað úr Watanabe-styrktarsjóðnum en hann hefur það að markmiði að efla fræðileg tengsl milli Íslands og Japans. Sjóðurinn var stofnaður árið 2008. Stofnféð var 3 milljónir bandaríkjadala og árið 2018 bætti hr. Watanabe veglegri peningagjöf við sjóðinn að upphæð tveimur milljónum bandaríkjadala. Sjóðurinn hefur stutt hundruð nemenda og fræðimanna síðastliðin ár til náms og rannsókna bæði á Íslandi og í Japan.
Auglýst var eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum í upphafi árs og bárust sjóðnum 64 umsóknir að þessu sinni. Eftirtaldir hlutu styrki:
Grunnnemar sem hljóta styrki til skiptinámsdvalar við samstarfsskóla HÍ í Japan:
- Alexandra Inga Hildur Herbertsdóttir, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Seikei University.
- Alexandros Oskar Ioannou, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við International Christian University.
- Björn Falk Arnoldsson, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Osaka Gakuin University.
- Dagmar Björk Bjarkadóttir, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Seinan Gakuin University.
- Daníel Snær Halldórsson, BS-nemi í tölvunarfræði, hlaut styrk til náms við Kyoto Sangyo University.
- Egill Askur Eineborg, BS-nemi í tölvunarfræði, hlaut styrk til náms við Kyoto Sangyo University.
- Einar Haruka Árnason, BS-nemi í viðskiptafræði, hlaut styrk til náms við Tokai University.
- Jade Brown, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Osaka Gakuin University.
- Júlía Sif Jónsdóttir, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Kansai Gaidai University.
- Katrín Ósk Albertsdóttir, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Kansai Gaidai University.
- Kolbeinn Magnús Lárusson, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við International Christian University.
- María Kristinsdóttir, BS-nemi í viðskiptafræði, hlaut styrk til náms við Kwansei Gakuin University.
- Ólafur Jökull Hallgrímsson, BA-nemi í stjórnmálafræði, hlaut styrk til náms við Sophia University.
- Ragnar Björn Bragason, BS-nemi í rafmagns- og tölvuverkfræði, hlaut styrk til náms við Sophia University.
- Ragnar Björn Ingvarsson, BS-nemi í tölvunarfræði, hlaut styrk til náms við Kyoto University.
- Tanja Rut Rúnarsdóttir, BS-nemi í hagnýttri stærðfræði, hlaut styrk til náms við Ritsumeikan University.
- Vigdís Elva Hermannsdóttir, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Waseda University.
- Þórey Einarsdóttir, BA-nemi í japönsku máli og menningu, hlaut styrk til náms við Ritsumeikan Asia Pacific University.
Framhaldsnemar sem hljóta styrki til námsdvalar í Japan:
- Ásthildur Margrét Jóhannsdóttir, doktorsnemi í hagfræði, hlaut styrk til náms við Osaka University.
- Gunndís Ýr Finnbogadóttir, doktorsnemi í menntavísindum, hlaut styrk til náms við RYOZO YPM & Aichi University.
- Hrefna Guðmundsdóttir, doktorsnemi í viðskiptafræði, hlaut styrk til náms við Kyoto University.
- Kjartan Þorri Kristjánsson læknanemi hlaut styrk til náms við University of Fukui.
- Luca Protti, doktorsnemi í lyfjavísindum, hlaut styrk til náms við ICONM í Kawasaki.
- Yeonji Ghim, doktorsnemi í sagnfræði, hlaut styrk til náms við Sophia University.
Japanskir grunnnemar sem hljóta styrki til náms við Háskóla Íslands:
- Ami Watase, BA-nemi í Asia Pacific Studies við Ritsumeikan Asia Pacific University.
- Hanna Yoshida, BA-nemi í Arts and Sciences við International Christianity University.
- Kohki Yamada, BA-nemi í Interdisciplinary Science and Innovation við Kyushu University.
- Mashiho Kaneko, BA-nemi í íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands.
- Momoka Sawa, BA-nemi í Image Arts and Sciences við Ritsumeikan University.
- Suzu Furukawa, BS-nemi í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands.
Japanskir framhaldsnemar sem hljóta styrki til náms við Háskóla Íslands:
- Kazutaka Morita, MS-nemi í tölfræði við Háskóla Íslands.
- Mirei Ikushima, MS-nemi í líffræði við Háskóla Íslands.
- Yu Yasuhira, MA-nemi í mannfræði við Háskóla Íslands.
Fræðimenn við Háskóla Íslands sem fá styrki til rannsóknadvalar í Japan:
- Adeel Akmal, lektor við Viðskiptafræðideild, hlýtur styrk til dvalar við NUCB Business School.
- Edita Tverijonaite, nýdoktor við Líf- og umhverfisvísindadeild, hlýtur styrk til dvalar við Wakayama University.
- Elena Callegari, nýdoktor við Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista, hlýtur styrk til dvalar við University of Tokyo.
- Eva Harðardóttir, lektor við Deild menntunar og margbreytileika, hlýtur styrk til dvalar við Tsuru University.
- Judith Trunschke, lektor við Líf- og umhverfisvísindadeild, hlýtur styrk til dvalar við Hakkaido University.
- Kári Kristinsson, prófessor við Viðskiptafræðideild, hlýtur styrk til dvalar við Iwate University.
- Kristín Ingvarsdóttir, lektor við Mála- og menningardeild, hlýtur styrk til dvalar við Hitotsubashi University.
- Laura Malinauskaite, nýdoktor við Hagfræðideild, hlýtur styrk til dvalar við IGES.
- Megumi Nishida, stundakennari við Mála- og menningardeild, hlýtur styrk til dvalar við Toyo University.
- Rosemary Philippa Cole, nýdoktor við Jarðvísindastofnun, hlýtur styrk til dvalar við JAMSTEC.
- Samuel Warren Scott, nýdoktor við Jarðvísindastofnun, hlýtur styrk til dvalar við AIST.
- Sigurður Guðjónsson, dósent við Viðskiptafræðideild, hlýtur styrk til dvalar við Iwate University.
Fræðimenn við japanska háskóla sem fá styrki til rannsóknadvalar við Háskóla Íslands:
- Abdelrahman Zkria Ahmed, dósent í efnisverkfræði við Kyushu University.
- Akiko Harada, dósent í menntavísindum við Tokai University.
- Gaku Kudo, dósent í grasafræði við Hakkaido University.
- Mariko Kanemitsu, prófessor í tónlistarfræði við Yokahama National University.
- Masahiro Saito, prófessor í þvermenningarlegri menntun og kennaramenntun við Asahikawa City University.
- Toshinari Kawada, prófessor í náttúruafurðaefnafræði við Kyoto Prefectural University.
Stjórn Watanabe styrktarsjóðsins skipa Eiríkur Smári Sigurðarson, rannsóknastjóri við Hugvísindasvið og formaður stjórnar, Toshizo "Tom" Watanabe, stofnandi sjóðsins, og Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og sendiherra.
Öflugt samstarf við japanska háskóla
Samstarf Háskóla Íslands og japanskra háskóla hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum, meðal annars fyrir tilstuðlan Watanabe-styrktarsjóðsins. Í dag á skólinn formlegt samstarf við 20 háskóla og rannsóknastofnanir í Japan.
Á þessu skólaári stunda 20 japanskir nemendur nám við Háskóla Íslands – fimmtán þeirra á eigin vegum og fimm í skiptinámi. Á sama tíma eru tólf nemendur frá Háskóla Íslands við nám í Japan. Þá eru um 70 nemendur skráðir í japönskunám við Háskólann, sem endurspeglar þann mikla áhuga sem er á japanskri tungu og menningu meðal íslenskra nemenda.