Háskóli Íslands

Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur

Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunarfræði og ljósmóðurfræði. Styrkir eru veittir til hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi vegna rannsóknarverkefna sem falla að markmiðum sjóðsins.

Sjóðurinn var stofnaður 29. júní 2007 af Ingibjörgu R. Magnúsdóttur og Rannsóknarstofnun í hjúkrunarfræði. Aðrir sem lögðu til stofnfé voru Glitnir, Ljósmæðrafélag Íslands, heilbrigðis- og tryggingarmálaráðuneytið og ýmsir einstaklingar. Þá hefur stofnandi sjóðsins, Ingibjörg R. Magnúsdóttir, lagt fram viðbótarframlög við stofnfé sjóðsins á árinu 2008 og 2009.

Ingibjörg var námsbrautarstjóri í hjúkrunarfræðideild Háskólans og skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingarmálaráðuneytinu. Hún hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar hjúkrunarmenntunar á Íslandi og var ein þeirra sem stóð að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði árið 1973.

Sjóðurinn starfar eftir staðfestri skipulagsskrá og hefur sjálfstæða stjórn.

Sjóðsstjórn er skipuð formanni stjórnar Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði, sem jafnframt er formaður sjóðsstjórnar, fulltrúa rektors Háskóla Íslands, fulltrúa Ljósmæðrafélags Íslands, fulltrúa Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fulltrúa heilbrigðis- og tryggingarmálaráðuneytisins. Sjóðsstjórn er skipuð til fjögurra ára.

Í stjórn sjóðsins sitja:

  • Jóhanna Bernharðsdóttir, lektor og stjórnarformaður Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði, fulltrúi rektors og formaður stjórnar, johannab@hi.is.
  • Stefán Bragi Bjarnason, lögfræðingur og fulltrúi Ingibjargar R. Magnúsdóttur, stefan@velaborg.is.
  • Ólöf Ásta Ólafsdóttir, lektor og fulltrúi Ljósmæðrafélags Íslands, olofol@hi.is.
  • Auðna Ágústsdótir, hjúkrunarfræðingur og fulltrúi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, audnaag@hi.is.
  • Dagmar Huld Matthíasdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu, dagmar.matthiasdottir@vel.is.

Hægt er að styrkja sjóðinn með ýmsu móti t.d. með gjöfum í tilefni árgangaafmæla eða útskriftar. Einnig er hægt að senda minningarkort og tækifæriskort frá sjóðnum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 0513-26-004057. Kennitala Styrktarsjóðanna HÍ er 571292-3199.

Frekari upplýsingar veitir Jóhanna Bernharðsdóttir, lektor við Hjúkrunarfræðideild, johannab@hi.is, sími 525-4987.

Staðfest skipulagsskrá (pdf). - breytt 2019

Umsóknareyðublað  (PDF)
Þú hleður niður umsóknareyðublaði og vistar hjá þér.
Ef reitur 8 rúmar ekki heimildaskrá er henni skilað á sér fylgiskjali. 

Heiti umsóknar og fylgiskjala þarf að vera með þessu formi: [heiti fylgiskjals_nafn_eftirnafn] 
Dæmi:

  • Heimildarskra_Anna_Jonsdottir
  • CV_Anna_Jonsdottir
  • Ritaskral_leidbeinanda_Anna_Jonsdottir (ekki heiti leiðbeinanda heldur heiti umsækjanda)
 

Fréttir

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is