Styrktarsjóður Skólabæjar hefur verið stofnaður undir hatti Styrktarsjóða Háskóla Íslands. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, undirritaði skipulagsskrá sjóðsins (síðasta dag sinn í embætti). Stofnfé sjóðsins er 430 milljónir króna. Sjóðnum er ætlað að efla vísindastarf Háskóla Íslands með því að veita styrki til doktorsnema á öllum fræðasviðum skólans.
Sjóðurinn er stofnaður til að heiðra minningu hjónanna Jóns Emils Ólafssonar, hæstaréttarlögmanns (f. 27. febrúar 1893, d. 24. júlí 1982), og Margrétar Jónsdóttur, húsfreyju (f. 4. febrúar 1890, d. 28. janúar 1965), sem gáfu Háskóla Íslands eignina Skólabæ við Suðurgötu 26 í Reykjavík, gamlan steinbæ ásamt vönduðu steinsteyptu íbúðarhúsi á sömu lóð. Eldra húsið stóð nálægt þeim stað sem Hólavallaskóli hafði staðið og var því nefnt Skólabær.
Jón Emil var kunnur borgari í Reykjavík á sinni tíð. Hann lauk lögfræðiprófi frá Kaupmannahafnarháskóla 1923og starfaði við lögfræðistörf í Kaupmannahöfn um hríð en í Reykjavík frá 1926. Hann var lengi forstjóri líftryggingafélagsins Andvöku og forstjóri Samvinnutrygginga 1954-1958. Margrét, kona hans, var dóttir síðustu ábúenda í Skólabæ í Reykjavík, hjónanna Jóns Valdasonar og Sigríðar Jónsdóttur. Fram kemur í gjafabréfinu frá 1972 kvöð um að eignin verði ætíð í eigu Háskóla Íslands.
Í fjárlögum ársins 2025 fékkst heimild til að selja eignina og nýta þá fjármuni sem fengjust í þágu kennslu og rannsókna við háskólann, t.d. með því að efna til sjóðs til styrktar doktorsnemum eða einstökum rannsóknarverkefnum. Með því móti væri heiðruð minning gefenda eignarinnar og virt að eignin, í yfirfærðri merkingu, yrði nýtt í þágu Háskóla Íslands um ókomna tíð.
Rektor Háskóla Íslands skipar úthlutunarnefnd sjóðsins og í henni sitja prófessorarnir Sædís Sævarsdóttir, sem jafnframt er formaður nefndarinnar, Guðný Björk Eydal og Morris Riedel.
Stjórn Styrktarsjóða Háskóla Íslands, sem skipuð er af háskólaráði, fer með stjórn sjóðsins. Stjórnina skipa Gylfi Magnússon, prófessor við Viðskiptafræðideild og formaður stjórnar, Valgerður Sólnes, prófessor við Lagadeild, og Jóhann Ómarsson, viðskiptafræðingur og ráðgjafi. Varamaður í stjórn er Sigurður Jóhannesson hagfræðingur.
Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem ánafnaðar hafa verið Háskóla Íslands allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja við ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta og starfsfólk. Sjóðirnir eru mikil lyftistöng fyrir háskólann, sem hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga í gegnum tíðina en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.