Háskóli Íslands

Styrkir til blindra og sjónskertra nemenda við Háskóla Íslands að upphæð 1 milljón króna

Á alþjóðadegi fatlaðra, miðvikudaginn 3. desember, var í annað skipti úthlutað styrkjum til blindra og sjónskertra nemenda til náms við Háskóla Íslands. Styrkirnir voru veittir úr Þórsteinssjóði og afhenti forseti Menntavísindasviðs, Jón Torfi Jónasson, þá við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi. Heildarupphæð styrksins var ein milljón króna sem var viðbótarframlag Blindravinafélagsins til Þórsteinssjóðs. Að þessu sinni voru styrkþegar tveir og hvor styrkur kr. 500.000.

Styrkþegar Þórsteinssjóðs eru þau Páll Þór Sigurjónsson og Sigríður Björnsdóttir. Páll Þór stundar BA-nám í kínverskum fræðum og Sigríður BA-nám í norsku, bæði við deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda við Hugvísindasvið Háskóla Íslands.

Þórsteinssjóður var stofnaður af Blindravinafélagi Íslands 6. desember 2006 og er til minningar um Þórstein Bjarnason, stofnanda Blindravinafélags Íslands. Megintilgangur sjóðsins er að styrkja blinda og sjónskerta til náms við Háskóla Íslands. Hlutverk og tilgangur Þórsteinssjóðs helgast af æviverki Þórsteins, sem fæddist 3. desember árið 1900. Hann stofnaði Blindravinafélag Íslands 24. janúar 1932 og var það fyrsti vísir að félagi til stuðnings fötluðu fólki á Ísland. Þórsteinn helgaði líf sitt blindum og sjónskertum á Íslandi á tuttugustu öld án þess að taka nokkru sinni laun fyrir heldur lagði félaginu til fé úr eigin vasa.

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem ánafnaðar hafa verið Háskóla Íslands, allt frá stofnun skólans. Flestir starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja við ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk.

 

Ljósmynd: Stjórn Þórsteinssjóðs ásamt styrkþegum: Arnfríður Ólafsdóttir, Rannveig Traustadóttir, Helga Eysteinsdóttir, Sigríður Björnsdóttir, sem hlaut styrk, Katla Leósdóttir, móðir Páls Þórs Sigurjónssonar, sem hlaut styrk og Jón Torfi Jónasson, forseti Menntavísindasviðs HÍ.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is