Menntasjóður Hugvísindasviðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að styrkja doktorsnema á lokastigum náms við deildir Hugvísindasviðs.
Umsóknarfrestur er til 3. apríl 2024.
Heildarfjárhæð styrkja er 2,1 milljón króna, sem skiptist á þrjú verkefni og fær hvert verkefni 700.000 krónur.
Í umsókn um styrk þurfa eftirtalin atriði að koma fram:
- Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
- Helstu atriði úr náms- og starfsferli og ritaskrá umsækjanda.
- Heiti rannsóknarverkefnisins.
- Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, að hámarki 150 orð, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk.
- Veigameiri lýsing á rannsóknarverkefni, að hámarki 800 orð. Þar er gerð grein fyrir fræðilegum forsendum verksins, aðferðafræði, helstu niðurstöðum og vísindalegu gildi þess. Fram komi hvort doktorsritgerðin er eitt heildstætt og samfellt verk eða safn greina.
- Tímaáætlun verkefnisins frá dagsetningu umsóknar í Menntasjóð til lokaskila til deildar. Miðað er við að doktorsritgerð verði skilað innan sex mánaða frá því að styrkur er veittur.
- Umsækjandi geri grein fyrir þeim styrkjum sem hann hefur hlotið á námstímanum.
- Staðfesting frá leiðbeinanda og fulltrúum í doktorsnefnd á því að hún telji doktorsnema geta lagt ritgerð fram til deildar innan sex mánaða frá því að styrkur er veittur.
- Nöfn, símanúmer og netföng þeirra sem leita má til um meðmæli.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.
Áhersla er lögð á vönduð fræðileg vinnubrögð við gerð umsóknar. Gert er ráð fyrir að styrkþegi skili sjóðnum skýrslu með helstu niðurstöðum og árangri af verkefninu þegar því lýkur.
Áætlað er að úthlutun fari fram maí/júní 2024.
Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Dagbjartar Guðmundsdóttur, verkefnisstjóra á Hugvísindasviði: dagu@hi.is.
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu sjóðsins á sjóðavef Háskóla Íslands. Einnig hjá verkefnisstjórum Hugvísindasviðs, Rominu Werth rw@hi.is og/eða Dagbjörtu Guðmundsdóttur dagu@hi.is.
Um sjóðinn
Sjóðurinn var stofnaður við Háskóla Íslands 2018 og er safn sjóða sem tengjast fræðigreinum sem tengjast Hugvísindasviði og eru sameinaðir til þess að styðja við doktorsnám á Hugvísindasviði. Sjóðirnir eru: Det Danske Selskabs Studenterlegat (1943), Forlagsboghandler, Dr. Phil. h.c. Ejnar Munkgaards Stiftelse til Fordel for Det filosofiske Fakultet ved Islands Universitet i Reykjavik (1938), Minningarsjóður dr. Rögnvalds Péturssonar (1960), Minningarsjóður norskra stúdenta (1948), Norðmannsgjöf (1961) og Sögusjóður stúdenta (1930).