Háskóli Íslands

Styrkir til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum við HÍ

Ákveðið hefur verið að veita styrki úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur í október 2016. Um er að ræða styrki til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum við Háskóla Íslands. Heildarupphæð styrkja er 700.000 krónur.

Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og verða veittir styrkir til rannsóknaverkefna hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi, sem falla að markmiðum sjóðsins.

Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er til 1. september 2016.

Val á styrkhöfum er í höndum stjórnarmanna. Stjórn sjóðsins skipa Jóhanna Bernharðsdóttir, formaður stjórnarinnar og stjórnarformaður Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði, Stefán Bragi Bjarnason lögfræðingur, fulltrúi Ingibjargar R Magnúsdóttur, Ólöf Ásta Ólafsdóttir fulltrúi Ljósmæðrafélags Íslands, Auðna Ágústdóttir fulltrúi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Dagmar Huld Matthíasdóttir, fulltrúi velferðarráðurneytisins.

Rafræn umsóknareyðublöð er að finna á heimsíðu Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði.

Þetta er í sjöunda sinn sem styrkur er veittur úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur en sjóðurinn var stofnaður sem einn af Styrktarsjóðum Háskóla Íslands í júlí árið 2007. Styrkhafar árið 2015 voru: Margrét Gísladóttir og Jóna Ingibjörg Jónsdóttir.

Ingibjörg R. Magnúsdóttir, stofnandi sjóðsins,er fyrrverandi námsbrautarstjóri í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Hún hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar hjúkrunarmenntunar á Íslandi og var ein þeirra sem stóð að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 1973.

Frekari upplýsingar um sjóðinn er að finna á heimasíðu sjóðsins á sjóðavef Háskóla Íslands: www.sjodir.hi.is.

Hægt er að styrkja sjóðinn með ýmsu móti t.d. með gjöfum í tilefni árgangaafmæla eða útskriftar. Einnig er hægt að senda minningarkort og tækifæriskort frá sjóðnum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 0513-26-004057. Kennitala Styrktarsjóðanna HÍ er 571292-3199.

Frekari upplýsingar um styrki og styrkveitingar veitir Jóhanna Bernharðsdóttir, formaður stjórnar, johannab@hi.is sími 525-5280.

 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is