Íslenskusjóðurinn auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2024. Að þessu sinni eru styrkir veittir til rannsókna- og þróunarverkefna sem styðja við íslenskunám fjöltyngdra barna í leik- og grunnskólum og/eða foreldra þeirra.
Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2024.
Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til að efla vald á íslensku máli barna og fullorðinna, einkum fjöltyngdra barna af erlendum uppruna og foreldra þeirra. Styrkir skulu veittir vegna verka sem styðja við og efla notkun á íslensku máli, svo sem þróunarverkefna, námskeiða og útgáfu einkum á leik- og grunnskólastigi. Upplýsingar um Íslenskusjóðinn má nálgast á vefsíðu hans.
Heildarfjárhæð úthlutaðra styrkja er allt að kr. 3.000.000.
Í umsókninni þurfa eftirtalin atriði að koma fram:
1. Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
2. Heiti verkefnis, markmið, vísindalegt og hagnýtt gildi.
3. Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, 2-3 málsgreinar, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk.
4. Veigameiri lýsing á verkefninu, ein blaðsíða að hámarki. Fram komi hvernig verkefninu er ætlað að auka við núverandi þekkingu á efninu og hvernig verkefnið samræmist markmiðum sjóðsins. Sé ætlunin að óska eftir stuðningi við hluta af stærra verkefni skal koma fram til hvaða þáttar sótt er um.
5. Framkvæmdaáætlun með tímasetningum og greinargóðri lýsingu á framkvæmd verkefnisins, ein blaðsíða að hámarki
6. Sundurliðuð fjárhagsáætlun. Upplýsingar um annan fjárhagslegan stuðning við verkefnið.
7. Yfirlit yfir helstu samstarfsaðila verkefnisins.
8. Ferilskrá umsækjenda.
9. Áætlun um kynningu niðurstaðna og sýnileika verkefnis.
Gert er ráð fyrir því að styrkþegi skili sjóðnum greinargerð um stöðu verkefnisins innan árs frá afhendingu styrks. Einnig er gert ráð fyrir að sjóðsins sé getið við kynningu á verkefnum sem hljóta styrk úr sjóðnum.
Hámarkslengd umsóknar er þrjár síður auk ferilskrár. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.
Áætlað er að úthlutað verði í júní 2024.
Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands, sjodir@hi.is.
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Háskóla Íslands, www.hi.is, á sjóðavef Háskóla Íslands, www.sjodir.hi.is, eða hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnisstjóra Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is og Jóhanna Einarsdóttir, formaður stjórnar sjóðsins, joein@hi.is.
Um sjóðinn
Íslenskusjóðurinn var stofnaður af Elsu Sigríði Jónsdóttur og Tómasi Gunnarssyni til minningar um foreldra þeirra, þau Sigríði S. Sigurðardóttur og Jón Sigurðsson og Björgu Tómasdóttur og Gunnar Guðmundsson. Íslensk tunga var þeim hjartfólgin og vildu þau veg hennar sem mestan.