Háskóli Íslands

Styrktarsjóður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur styður útgáfu fjögurra rita og ráðstefnu

Veittir hafa verið fimm styrkir úr Styrktarsjóði Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur árið 2025, að upphæð rúmlega 3,7 milljónir króna. Stjórn sjóðsins samþykkti einróma á fundi sínum, sem haldinn var þann 28. febrúar 2025, að styrkja útgáfu stofnunarinnar með eftirfarandi hætti:

Æskýlos, Sjö hershöfðingjar móti Þebu, 
kr. 500.000. 

Ritnefnd SVF, Milli mála 2025, tvö hefti, 
kr. 2.200.000.

Birna Bjarnadóttir, Burtsigling. Ljóð Undínu, 
kr. 400.000.

Við brúna, og fleiri sögur frá Þýskalandi, 
kr. 500.000 kr.

Einnig var veittur styrkur til Geirs Sigurðssonar vegna ráðstefnunnar - The 5th biennial conference of the European Association for Chinese Philosophy 
kr. 100.000 

Stjórn sjóðsins skipa þau Steinþór Pálsson, sem er formaður stjórnar, Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor emerita, og Berglind Ásgeirsdóttir. Varamaður í stjórn er Pétur Knútsson. 

Styrktarsjóður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur var stofnaður árið 2003. Hlutverk hans er að renna styrkum stoðum undir starfsemi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og stuðla að vexti og viðgangi stofnunarinnar. 

Hægt er að styrkja sjóðinn með ýmsu móti. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 0596-26-1760. Kennitala Styrktarsjóða HÍ er 571292-3199. Mikilvægt er að merkja greiðsluna nafni sjóðsins. 

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem ánafnaðar hafa verið Háskóla Íslands allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja við ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta og starfsfólk. Sjóðirnir eru mikil lyftistöng fyrir háskólann, sem hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga í gegnum tíðina en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is