Háskóli Íslands

Styrkur til MA-nema í íslensku og sagnfræði

Stjórn Minningarsjóðs dr. phil. Jóns Jóhannessonar hefur ákveðið að veita styrk til meistaranema í sagnfræði og/eða íslensku. Um er að ræða styrk að upphæð kr. 200.000. Tilgangur sjóðsins er að veita stúdentum eða kandídötum í íslensku og sagnfræði styrki til einstakra rannsóknarverkefna sem tengjast námi þeirra.

Umsóknarfrestur um styrkinn er til 9. maí 2011 en áætlað er að úthlutun fari fram 6. júní nk. Val styrkhafa er í höndum sjóðsstjórnar en hana skipa Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði og formaður stjórnar, Margrét Eggertsdóttir og Guðrún Ása Grímsdóttir, báðar rannsóknaprófessorar við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Frekari upplýsingar um styrkinn er að finna á heimasíðu Háskóla Íslands, www.hi.is, sjóðasíðu Háskóla Íslands, www.sjodir.hi.is, og einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnisstjóra styrktarsjóða og hollvina HÍ, helgab@hi.is, sími 525-5894.

Sjóðurinn var stofnaður árið 1983 til minningar um prófessor Jón Jóhannesson, er lést 4. maí 1957, með gjöf ekkju prófessors Jóns, frú Guðrúnar P. Helgadóttur, og með minningargjöfum samstarfsmanna, nemenda, ættingja og vina hans.

Rafrænn markpóstur (pdf.)
 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is