Háskóli Íslands

Styrkur úr Almanakssjóði – Almanak Háskóla Íslands

Veittur hefur verið styrkur úr Almanakssjóði vegna útgáfu Almanaks Háskólans. Almanakið hefur komið út samfellt frá árinu 1837 og nýlega fór 190. árgangur þess í vinnslu í prentsmiðju. 

Almanakið er grundvallarheimild á íslensku um stjörnufræðileg fyrirbæri og um hreyfanlegar dagsetningar í gamla íslenska misseristalinu. Almanak Háskólans er sú heimild sem útgefendur annarra almanaka styðjast helst við.

Almanakið á mjög traustan lesendahóp og upplag þess hefur hin síðustu ár verið um 3.000 eintök að meðtöldu Almanaki Hins íslenska þjóðvinafélags sem hefur heimild til að taka Almanak Háskólans upp í sitt almanak.

Gunnlaugur Björnsson, stjarneðlisfræðingur við Háskóla Íslands, tók við umsjón Almanaksins árið 2023 af dr. Þorsteini Sæmundssyni. Gunnlaugur tók við styrknum úr hendi  Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands. Styrkurinn hljóðar upp á 2 milljónir króna og er ætlað að styðja við áframhaldandi útgáfu Almanaksins.

Um sjóðinn
Almanakssjóður var stofnaður samkvæmt lögum nr. 25, 27. júní 1921 um einkaleyfi handa Háskóla Íslands til útgáfu almanaks. Markmið sjóðsins er m.a. að greiða kostnað við útreikning á almanökum háskólans, að styrkja rannsóknir í stjarnfræði og rímfræði, stærðfræði og stærðfræðilegri eðlisfræði og útgáfu vísindalegra rita í þessum fræðum. 

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk. 

Frekari upplýsingar um Styrktarsjóði Háskóla Íslands er að finna á sjóðavef.
 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is