Háskóli Íslands

Toshizo Watanabe færir Háskóla Íslands 280 milljónir króna að gjöf

Stofnskrá nýs styrktarsjóðs, sem kenndur er við Watanabe, var undirrituð af stofnandanum Toshizo Watanabe og Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands, við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands í dag. Geir H. Haarde forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra voru viðstödd athöfnina, ásamt fjölda gesta. Stofnframlag Watanabe til sjóðsins er þrjár milljónir Bandaríkjadala, um 280 milljónir íslenskra króna. Tilgangur Styrktarsjóðs Watanabe við Háskóla Íslands er að veita styrki til skiptináms í Japan og á Íslandi, bæði nemendum í grunnnámi og framhaldsnámi, auk þess að stuðla að samvinnu vísindamanna og gagnkvæmum skiptum.

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, færði Watanabe sérstakar þakkir fyrir einstakt örlæti og velvild í garð Háskóla Íslands við þetta tilefni. Í ávarpi sínu sagði hún að sjóðurinn yrði gríðarlega mikilvægur fyrir tengsl Íslands og Japans í framtíðinni og veitti stúdentum og vísindamönnum einstakt tækifæri. Sjóðurinn væri Háskólanum jafnframt ómetanleg hvatning við að ná öndvegismarkmiðum sínum. Þessi rausnarlega peningagjöf væri skýrt dæmi um þau ómetanlegu áhrif sem einstaklingur gæti haft, en ekki síður bæri hún vitni um gildi þeirra vináttutengsla sem efnt er til á háskólaárum. Toshizo Watanabe nam við Brandeis-háskólann í Waltham, Massachusetts í Bandaríkjunum og var þar skiptinemi. Þaðan hlaut hann BS-gráðu í stjórnmálafræði árið 1973. Watanabe brautskráðist síðan með MBA-gráðu frá Pepperdine-háskólanum í Kaliforníu í Bandaríkjunum, árið 1992. Í framhaldinu varð hann stjórnarformaður, forstjóri og eigandi Nikken-fyrirtækisins sem hefur höfuðstöðvar í Bandaríkjunum. Watanabe sat á skólabekk með Geir H. Haarde forsætisráðherra í Bandaríkjunum og tókst með þeim ágæt vinátta sem haldist hefur fram á þennan dag.

Toshizo Watanabe og Geir Haarde forsætisráðherra varð tíðrætt um vináttuna og gildi hennar í ávörpum sínum í dag. Þeir slógu á létta strengi þegar þeir rifjuðu upp námsárin, en þeir deildu meðal annars saman herbergi í einn vetur. Forsætisráðherra vitnaði í fornbókmenntir Íslendinga þegar hann lauk máli sínu, á þá lund að þótt gjafir Watanabe væru vissulega góðar þá væri vinátta hans enn verðmætari.
Styrktarsjóði Watanabe við Háskóla Íslands er ætlað að veita íslenskum og japönskum stúdentum sama tækifæri til náms og Watanabe gafst og stuðla jafnframt að aukinni velvild á milli Japans og Íslands. Stjórn sjóðsins til næstu þriggja ára skipa Eri Watanabe, forstjóri Watanabe-sjóðsins í Bandaríkjunum, Ingimundur Sigfússon, fyrrverandi sendiherra Íslands í Japan, og Már Másson, prófessor við HÍ, sem útskrifaðist með doktorspróf í líftækni frá Tokyo Institute of Technology í Japan. Már verður stjórnarformaður sjóðsins.
 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is