Háskólasjóður Eimskipafélags Íslands / Doktorsstyrkir Rannsóknasjóðs Háskóla Íslands
Auglýst er eftir umsóknum um doktorsstyrki sem veittir eru við Háskóla Íslands. Styrkirnir eru veittir úr Háskólasjóði Eimskipafélags Íslands og Rannsóknasjóði Háskóla Íslands og er markmið þeirra að efla Háskóla Íslands sem alþjóðlegan rannsóknaháskóla og gera hann eftirsóknarverðan fyrir doktorsnema.
Til viðbótar við almenna styrki eru að þessu sinni í boði styrkir sem eru bundnir sérstökum viðfangsefnum. Annars vegar er um að ræða að styrkt verði tvö til þrjú verkefni, til allt að þriggja ára, sem skulu tengjast rannsóknum á flugstarfsemi og þáttum sem tengjast flugi. Styrkirnir eru fjármagnaðir af ISAVIA. Hins vegar verður styrkt eitt verkefni, einnig til allt að þriggja ára, sem skal tengjast rannsóknum á hvítblæði. Sá styrkur er fjármagnaður af dánarbúi Ásrúnar Einarsdóttur.
Umsóknarfrestur um doktorsstyrki er til 29. janúar 2013. Umsókn getur verið af tvennum toga. Annaðhvort sækja stúdent og leiðbeinandi um í sameiningu eða leiðbeinandi sækir um á grundvelli verkefnis og auglýsir eftir doktorsnema, fáist styrkur. Stúdentar og fastráðnir kennarar við Háskóla Íslands og sérfræðingar, sem uppfylla kröfur sjóðanna og kröfur sem gerðar eru til leiðbeinenda í framhaldsnámi, geta sótt um styrki.
Í samræmi við stefnu Háskóla Íslands hefur verið lögð sérstök áhersla á eflingu doktorsnáms og styrki til doktorsnema við skólann. Efling doktorsnáms við háskólann styrkir stöðu hans sem alþjóðlega viðurkennds rannsóknaháskóla og gerir honum kleift að sinna hlutverki sínu sem æðsta menntastofnun þjóðarinnar. Öflugur rannsóknaháskóli er frumskilyrði þess að Ísland sé samkeppnisfært í vísindum, nýsköpun og atvinnuþróun innan þekkingarsamfélags þjóðarinnar.
Þetta í sjöunda skipti sem doktorsstyrkjum verður úthlutað bæði úr Háskólasjóði H/f Eimskipafélags Íslands og Rannsóknasjóði Háskóla Íslands. Síðast var úthlutað úr sjóðunum vorið 2012, alls tuttugu og fjórum vísindastyrkjum til rannsóknatengdra verkefna á ólíkum sviðum.
Frekari upplýsingar:
Nánari upplýsingar um viðmið og kröfur vegna styrkjanna má finna á heimasíðu sjóðanna á sjóðavef Háskóla Íslands.
Þá er einnig hægt að nálgast auglýsingu fyrir styrkina á sjóðavefnum.