Á fundi stjórnar Styrktarsjóðs Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur sem haldinn var þann 14. september 2022 var samþykkt einróma að styrkja útgáfu stofnunarinnar með eftirfarandi hætti:
Tímarit Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur: Milli mála
- Sérhefti 2023
„Skáldið, taóið og dulspekin“: Milli mála 15(1): https://millimala.hi.is/is/arg-1512022/
- Almennt hefti
Milli mála 15(2): https://millimala.hi.is/is/arg-1522023/
1.400.000 kr.
Útgáfa rita á vegum stofnunarinnar: Hjónaband rauðu fiskanna, Að vestan. Íslensk-kanadískar smásögur, Litháarnir við Laptevhaf, Bókmenntir rómískra kvenna og Saga múslima á Íberíuskaganum
Samtals: 1.500.000 kr.
Samþykkt var að styrkja gerð kynningarmyndbanda fyrir Vigdísarstofnun – Alþjóðlega miðstöð tungumála og menningar (vigdis.hi.is) vegna Alþjóðlegs áratugs frumbyggjatungumála 2022-2032 um 500.000 kr.
Að auki var veittur styrkur sem vilyrði var fyrir frá árinu 2020 til eftirfarandi verkefnis:
Lexía. Íslensk-frönsk veforðabók að upphæð 1.500.000 kr.
Lexía er í opnum aðgangi: lexia.hi.is
Styrktarsjóður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur var stofnaður árið 2003. Hlutverk hans er að renna styrkum stoðum undir starfsemi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og stuðla að vexti og viðgangi stofnunarinnar.
Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem ánafnaðar hafa verið Háskóla Íslands allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja við ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta og starfsfólk. Sjóðirnir eru mikil lyftistöng fyrir háskólann, sem hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga í gegnum tíðina en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.