Háskóli Íslands

Verðlaunaður fyrir afburðaárangur í verkfræði við Háskóla Íslands

Daníel Þór Guðmundsson, BS-nemi á þriðja ári í hugbúnaðarverkfræði við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents. Frú Vigdís Finnbogadóttir, systir Þorvalds, afhenti styrkinn við hátíðlega athöfn á Litla torgi.
 
Sjóðurinn styrkir árlega efnilega nema í verkfræði við Háskóla Íslands til framhaldsnáms í greininni. Sá nemandi, sem er með hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í grunnnámi, hlýtur styrkinn hverju sinni. 
 
Daníel Þór lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands árið 2017 og hóf nám við Háskóla Íslands sama ár. Hann er ekki aðeins afburðanámsmaður heldur einnig afreksmaður í íþróttum og var leikmaður Fram í handbolta í mörg ár þar til hann lagði skóna á hilluna í fyrra.
 
Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar Háskóla Íslands. Árlega er veitt viðurkenning úr sjóðnum til afburðanemanda í verkfræði við Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952.
Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is