Háskóli Íslands

Verðlaunaður fyrir afburðaárangur í verkfræði við Háskóla Íslands

Magnús Gunnar Gunnlaugsson, BS-nemi á þriðja ári í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents. Frú Vigdís Finnbogadóttir, systir Þorvalds, afhenti styrkinn.
 
Sjóðurinn styrkir árlega efnilega nema í verkfræði við Háskóla Íslands til framhaldsnáms. Sá nemandi sem er með hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í grunnnámi hlýtur styrkinn hverju sinni. 
 
Magnús Gunnar Gunnlaugsson lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 2020 og hóf nám við Háskóla Íslands sama ár.
 
Vigdís minnist hér Þorvalds og ræðir einnig um brautryðjendastarf föður hennar í verkfræði við Háskóla Íslands.
 

Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar Háskóla Íslands. Árlega er veitt viðurkenning úr sjóðnum til afburðanemanda í verkfræði við Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is