Háskóli Íslands

Viðurkenning fyrir nýsköpun á sviði orku- og byggingariðnaðar

Sunna Ólafsdóttir Wallevik efnafræðingur hlýtur viðurkenningu Nýsköpunarsjóðs dr. Þorsteins Inga Sigfússonar við Háskóla Íslands árið 2025 fyrir frumkvöðlastarf sitt á sviði jarðhita, byggingariðnaðar og orkufreks iðnaðar. Sunna tók við viðurkenningunni úr hendi Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands, við hátíðlega athöfn 4. júní síðastliðinn.

Þetta er í fimmta sinn sem viðurkenning er veitt úr sjóðnum en tilgangur hans er að vekja athygli á nýsköpun og styrkja efnilega frumkvöðla, nemendur eða vísindamenn, sem sinna verkefnum eða rannsóknum er lúta að nýsköpun.

Sunna Ólafsdóttir Wallevik er með BS-gráðu í efnafræði með áherslu á verkfræði, MS-gráðu í ólífrænni efnafræði og MBA-gráðu. Hún byrjaði 17 ára að vinna við steypurannsóknir á Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins og hefur frá þeim tíma unnið víða að rannsóknum á sviði byggingar- og orkutengdrar nýsköpunar ásamt því að kenna bæði lífræna og ólífræna efnafræði. Sunna og samstarfsfólk hennar hafa stofnað fyrirtæki sem tengjast nýsköpun í jarðhita, byggingariðnaði og orkufrekum iðnaði. Þau eru Gerosion (2014), Álvit (2020) og Rockpore (2022) sem m.a. hafa hlotið veglega alþjóðlega styrki og nýsköpunarverðlaun. 

Gerosion vinnur að umhverfisvænum nýsköpunarlausnum fyrir jarðhita- og orkufrekan iðnað. Meðal þeirra einkaleyfishæfu lausna sem Gerosion er að þróa er ProCase-varnarfóðring fyrir djúpar borholur á háhitasvæðum, sem gerir mögulegt að bora mun dýpra en áður hefur verið mögulegt. Gerosion hefur einnig þróað umhverfisvænt sementslaust AlSiment-steinlím sem einnig bindur koltvísýring og kemur í stað sements í steinsteypu. Þessar lausnir geta skipt máli í baráttunni gegn loftslagsbreytingum þar sem sementsiðnaðurinn veldur um 10% af allri koltvísýringslosun af mannavöldum í heiminum og byggingariðnaðurinn allt að 40%. Gerosion hefur einnig unnið að ýmiss konar verðmætasköpun úr úrgangsstraumum og unnið með kísilverunum Elkem og PCC að nýtingu affallsefna þeirra með framleiðslu á hráefniskögglum eða orkukubbum sem fara aftur inn í framleiðsluferli kísil- og málmvera. 

Álvit hefur þróað umhverfisvænt háhita- og tæringarþolið bindiefni fyrir kragasalla og rafskaut ál-, kísil- og annarra málmvera sem kemur í stað hins krabbameinsvaldandi koltjörubiks sem brátt verður bannað.  

Rockpore sérhæfir sig í þróun á léttum fylliefnum sem henta fullkomlega í hringrásarferli og standa framar öllum öðrum slíkum fylliefnum á markaði í dag. Þessi fylliefni geta nýst m.a. í steinsteypu, vökvaræktun og á gervigrasvelli (þar sem Rockpore-fylliefni kemur í stað dekkjakurls). Rockpore-fylliefnin eru framleidd úr úrgangsstraumum sem annars hefðu endað í landfyllingu eða verið urðaðir á annan hátt, eins og gler- og steypuúrgang.

Um sjóðinn
Nýsköpunarsjóður dr. Þorsteins Inga Sigfússonar var stofnaður 4. júní 2020 til minningar um dr. Þorstein Inga Sigfússon (f. 4. júní 1954, d. 15. júlí 2019). Stofnandi sjóðsins er Bergþóra K. Ketilsdóttir, ekkja Þorsteins Inga.

Þorsteinn Ingi lauk doktorsnámi í eðlisfræði frá Cambridge-háskóla í Englandi árið 1983. Hann hóf störf sem fræðimaður við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands árið 1982 og síðar sem prófessor í eðlisfræði við Háskólann. Þorsteinn Ingi vann ötullega að tengingu háskóla og atvinnulífs og kom að stofnun og stjórnarmennsku í sprotafyrirtækjum á mörgum sviðum. Hann var frumkvöðull á sviði orkurannsókna á Íslandi og beitti sér ötullega í baráttunni við að draga úr losun koltvíoxíðs í andrúmslofti. Þorsteinn Ingi varð forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands við stofnun hennar 2007. Hann var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir vísindastörf og framlag til hátækniatvinnugreina og hlaut rússnesku Alheimsorkuverðlaunin árið 2007 fyrir framlag sitt til vetnismála.

Stjórn sjóðsins skipa dr. Guðrún Pétursdóttir, prófessor emerita við Háskóla Íslands, sem er formaður stjórnar, Hermann Kristjánsson, verkfræðingur og frumkvöðull, og dr. Þór Sigfússon hagfræðingur. Viðurkenning sjóðsins er veitt árlega á afmælisdegi Þorsteins Inga.

Hægt er að styrkja sjóðinn með peningagjöfum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 596-26-1760. Kennitala Styrktarsjóða Háskóla Íslands er 571292-3199. Mikilvægt er að merkja greiðsluna nafni sjóðsins. Netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands er sjodir@hi.is.

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk. 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is