Háskóli Íslands

Styrkir til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum

Auglýst er eftir umsóknum um  styrk úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur haustið 2019. Um er að ræða styrki til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og njóta nemendur við Háskóla Íslands forgangs. Heildarupphæð styrkja er 900.000 krónur.
 
Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og verða veittir styrkir til rannsóknaverkefna hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi, sem falla að markmiðum sjóðsins.
 
Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er til og með 7. október september 2019. 
 
Rafræn umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Hjúkrunarfræðideildar og heimasíðu sjóðsins á sjóðavef HÍ.
Val á styrkhöfum er í höndum stjórnarmanna en stjórn sjóðsins skipa Jóhanna Bernharðsdóttir, formaður stjórnarinnar, Stefán Bragi Bjarnason lögfræðingur, fulltrúi Ingibjargar R Magnúsdóttur, Ólöf Ásta Ólafsdóttir fulltrúi Ljósmæðrafélags Íslands, Auðna Ágústdóttir fulltrúi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Dagmar Huld Matthíasdóttir, fulltrúi velferðarráðurneytisins.
Þetta er í tólfta sinn sem styrkur er veittur úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur en sjóðurinn var stofnaður sem einn af Styrktarsjóðum Háskóla Íslands í júlí árið 2007. 
 
Ingibjörg R. Magnúsdóttir, stofnandi sjóðsins, er fyrrverandi námsbrautarstjóri í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Hún hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar hjúkrunarmenntunar á Íslandi og var ein þeirra sem stóð að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 1973.
 
Frekari upplýsingar um sjóðinn er að finna á heimasíðu sjóðsins á sjóðavef Háskóla Íslands.
Hægt er að styrkja sjóðinn með ýmsu móti t.d. með gjöfum í tilefni árgangaafmæla eða útskriftar. 
Einnig er hægt að senda minningarkort og tækifæriskort frá sjóðnum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 0596-26-1760. Kennitala Styrktarsjóðanna HÍ er 571292-3199. Mikilvægt er að merkja greiðsluna nafni sjóðsins.
 
Frekari upplýsingar um styrki og styrkveitingar veitir Jóhanna Bernharðsdóttir, formaður stjórnar, johannab@hi.is, sími 525-4987/525-4960 og Helga Brá Árnadóttir, verkefnastjóri Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is
 
Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is