Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Watanabe-styrktarsjóðnum við Háskóla Íslands.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2022.
Tilgangur Watanabe-sjóðsins er að styrkja fræðileg tengsl Íslands og Japans. Sjóðurinn styrkir stúdenta og starfsmenn Háskóla Íslands til náms og starfa í Japan og það sama gildir um stúdenta og vísindamenn við japanska háskóla, sem eiga þess kost að fá styrk til dvalar við Háskóla Íslands.
Annars vegar er um að ræða styrki til námsdvalar fyrir nemendur á grunn- og framhaldsstigi við Háskóla Íslands eða japanska háskóla og hins vegar ferða- og dvalarstyrki til nýdoktora, kennara og fræðimanna milli háskóla í Japan og Háskóla Íslands. Nemendur og akademískir starfsmenn af öllum fræðasviðum geta sótt um styrkina.
Veittir eru ferða- og dvalarstyrkir til allt að níu mánaða námsdvalar. Dvalarstyrkur nemur allt að 200.000 kr. á mánuði vegna dvalar á Íslandi og allt að 150.000 JPY á mánuði vegna dvalar í Japan. Styrkþegar sem dvelja lengur en einn mánuð geta einnig sótt um allt að 200.000 kr. í ferðastyrk. Sjóðurinn veitir ekki styrk fyrir skólagjöldum eða öðrum kostnaði. Nýdoktorar, kennarar og fræðimenn geta einnig sótt um allt að 500.000 kr. styrk til styttri dvalar, allt að einum mánuði, sem tengist fræðistörfum eða rannsóknasamstarfi milli Háskóla Íslands og mennta- eða fræðastofnana í Japan.
Stjórn Watanabe sjóðsins metur umsóknir og velur styrkhafa. Stjórnin áskilur sér rétt að hafna styrkumsókn.
Lokaskýrslur og frásagnir fyrrverandi styrkhafa er að finna á vefsíðu sjóðsins.
Útfyllt umsóknareyðublað ásamt fylgiskjölum skal sent á netfangið watanabe@hi.is fyrir miðnætti að kvöldi 15. janúar 2022.
Fyrirspurnum um Watanabe-styrktarsjóðinn og umsóknarferli skal beint á netfangið watanabe@hi.is, eða til Hafliða Sævarssonar verkefnisstjóra í síma 525-4311.
Fyrirvari er gerður varðandi veitingu styrkja úr sjóðnum á næsta námsári að styrkhafar geti ferðast milli Japans og Íslands m.t.t. COVID-19-reglna stjórnvalda í löndunum tveimur.