Háskóli Íslands

Verðlaunaður fyrir afburðaárangur í verkfræði við Háskóla Íslands

Valentin Oliver Loftsson, BS-nemi í hugbúnaðarverkfræði, hefur hlotið styrk úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents. Frú Vigdís Finnbogadóttir, systir Þorvalds, afhenti styrkinn við hátíðlega athöfn á Litla torgi í dag, fimmtudaginn 21. desember.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja efnilega nema í verkfræði við Háskóla Íslands til framhaldsnáms í verkfræði. Nemandi, sem er með hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í grunnnámi, hlýtur styrkinn hverju sinni. 
 
Valentin Oliver Loftsson lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands vorið 2014 og hóf BS-nám í hugbúnaðarverkfræði haustið 2015. Hann hlaut styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands fyrir háskólaárið 2015-2016.
 
Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar Háskóla Íslands. Árlega er veitt viðurkenning úr sjóðnum til afburðanemanda í verkfræði við Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952.
 
Frekari upplýsingar um sjóði Háskóla Íslands er að finna á sjóðavef Háskóla Íslands, www.sjodir.hi.is. Einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnisstjóra Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is, sími 525-5894.
 
Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is