Háskóli Íslands

Verðlaunuð fyrir afburðaárangur í verkfræði við Háskóla Íslands

Þjóðbjörg Eiríksdóttir, BS-nemi í rafmagns- og tölvuverkfræði, hefur hlotið styrk úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents. Frú Vigdís Finnbogadóttir, systir Þorvalds, afhenti styrkinn við hátíðlega athöfn á Litla torgi í dag, miðvikudaginn 21. desember.
 
Tilgangur sjóðsins er að styrkja efnilega nema í verkfræði við Háskóla Íslands til framhaldsnáms í verkfræði. Nemandi, sem er með hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í grunnnámi, hlýtur styrkinn hverju sinni. 
 
Þjóðbjörg Eiríksdóttir er frá Gýgjarhólskoti 1 í Biskupstungum. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni vorið 2014 og hóf þá um haustið BS-nám í rafmagns- og tölvuverkfræði. Þjóðbjörg hlaut styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands vorið 2014.
 
Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar Háskóla Íslands. 
Árlega er veitt viðurkenning úr sjóðnum til afburðanemanda í verkfræði við Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952.
 
Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum  sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk.
 
 
Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is