Háskóli Íslands

Fá styrki til að efla ritfærni og sköpun á íslensku

Tveir meistaranemar við Háskóla Íslands hafa hlotið styrk úr Minningarsjóði Erlendar Jónssonar og Mörtu Ágústsdóttur. Styrkhafar eru Kata Suemegi, MA-nemi í ritlist, og Ragnheiður G. Guðmundsdóttir, MA-nemi í annarsmálsfræði.  Þetta er í fyrsta skipti sem úthlutað er úr sjóðnum og nemur heildarupphæð styrkja einni milljón króna. 

Tilgangur sjóðsins er að efla stöðu íslenskunnar almennt og styrkja nemendur í íslensku, bókmenntum og ritlist við Háskóla Íslands. Sérstaklega skal stutt við verkefni er lúta að ritfærni og þjálfun nemenda við beitingu íslensks máls og við skapandi verkefni nemenda, s.s. ritlistarverkefni og hvers konar bókmenntasköpun á íslensku. Sjóðurinn er opinn nemendum bæði í grunn- og framhaldsnámi við Háskóla Íslands.

Kata Suemegi, MA-nemi í ritlist við Hugvísindasvið HÍ, hlaut styrk til að vinna að skáldsögu, sem  byggist á reynslu höfundar, og er blanda af fantasíu og súrrealískri sjálfssögu. Sagan hefst þegar tíu ára stúlka vaknar í svefnherbergi sínu morgun einn á tíundu hæð í fjölbýlishúsi, en íbúðin er orðin að óreiðukenndu völundarhúsi. Hún er elt út úr íbúðinni af veru og þannig hefst ferðalag niður hæðir byggingarinnar. Hún hittir ólíklegustu nágranna, gengur inn í og út úr undarlegum veruleika en persónur og íbúðir tákna fólk, atburði og þætti úr fortíð og nútíð höfundarins. Kata kannar hvernig súrrealisminn veitir frelsi til trúverðugrar tjáningar á hinu innra hugræna landslagi og skoðar hvernig er hægt að skapa skýrari mynd af tilfinningalegum veruleika með því að kafa ofan í hið óraunverulega.

Kata lauk BA-námi í vöruhönnun frá University of Sopron í Ungverjalandi árið 2015. Hún útskrifaðist í íslensku sem öðru máli frá HÍ árið 2024 og hóf nám í ritlist á sama ár. 

Ragnheiður G. Guðmundsdóttir, MA-nemi í annarsmálsfræði við Hugvísindasvið HÍ, hlaut styrk fyrir verkefnið Þrymskviða — léttlestrarbók fyrir þau sem læra íslensku sem annað mál (stig A2-B1). Sagan af því þegar Þór klæddi sig í kvenmannsföt, fór í jötunheima og þóttist vera Freyja til að  endurheimta hamarinn sinn verður sögð í nútímabúningi með orðskýringum, orðaforða-, tal- og ritunarverkefnum. Bókin verður aðgengileg á PDF-sniði og sem hljóðbók. Verkefnið er hluti af MA-ritgerð Ragnheiðar og er ætlað börnum (eldri en 7 ára) og fullorðnum, sem læra íslensku sem annað mál. Markmiðið með bókinni er að fólk sem er að læra íslensku öðlist tæki til að læra orðasambönd og orðaforða en rannsóknir á börnum sem læra íslensku sem annað mál hafa sýnt að það er orðaforðinn sem stendur þeim öðru fremur fyrir þrifum í námi þegar lengra dregur. Bókinni er ætlað að verða skapandi verkfæri til aðstoðar við að læra nýjan orðaforða, sem stuðlar að velgengni þeirra sem læra íslensku sem annað mál í samfélaginu. Ragnheiður hefur kennt íslensku sem erlent mál síðan 2001 og brennur fyrir málefninu. Hún hefur kennt við University College London (2001-2018), bæði í kvöldskóla og grunnnámi og við Cambridge University (2011-13). Hún hefur einnig fengist við skriftir, talsetningar og leiklist.

Ragnheiður lauk BA-námi í heimspeki með frönsku sem aukafag frá HÍ árið 1994. Hún er nú á öðru ári í  MA-námi í annarsmálsfræðum við HÍ. Leiðbeinendur hennar eru María Anna Garðarsdóttir og Sigríður Þorvaldsdóttir. 

Um sjóðinn
Minningarsjóður Erlendar Jónssonar og Mörtu Ágústsdóttur var stofnaður 3. desember 2024 til minningar um Erlend Jónsson, rithöfund, íslenskukennara og bókmenntagagnrýnanda, og konu hans, Mörtu Ágústsdóttur.

Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og í úthlutunarnefnd sjóðsins sitja Rúnar Helgi Vignisson, prófessor í ritlist, Gunnþórunn Guðmundsdóttir, prófessor í bókmenntafræði, og Ásta Kristín Benediktsdóttir, dósent í íslensku.

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk. 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is