Háskóli Íslands

Námsstyrkir til blindra og sjónskertra stúdenta

Átta námsstyrkir hafa verið veittir úr Þórsteinssjóði til blindra og sjónskertra stúdenta við Háskóla Íslands. Þetta er í tíunda skipti sem styrkjum er úthlutað úr sjóðnum og nemur upphæð styrkjanna samtals 2,4 milljónum króna.
 
Megintilgangur Þórsteinssjóðs er að styrkja blinda og sjónskerta stúdenta til náms við Háskóla Íslands. Enn fremur er sjóðnum ætlað að efla rannsóknir sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri sýn og afleiðingum hennar og fjölga þannig tækifærum blindra og sjónskertra til að auðga og efla líf sitt. Sérstök áhersla er lögð á styrki til rannsókna í félags- og hugvísindum sem falla að tilgangi sjóðsins. 
 
Námsstyrki í ár hljóta átta nemendur við Háskóla Íslands. Það eru þau Ólöf Hulda Steinþórsdóttir, BS-nemi í sálfræði á Heilbrigðisvísindasviði, Rósa María Hjörvar, doktorsnemi í almennri bókmenntafræði á Hugvísindasviði, Júlíus Jóhannsson, BA-nemi í táknmálsfræði og táknmálstúlkun á Hugvísindasviði, Patrekur Andrés Axelsson, BS-nemi í sjúkraþjálfunarfræði á Heilbrigðisvísindasviði, Eydís Arna Sigurbjörnsdóttir, BA-nemi í félagsráðgjöf á Félagsvísindasviði, Vala Ósk Ólafsdóttir, meistaranemi í félagsráðgjöf á Félagsvísindasviði, Andri Snær Karlsson, BA-nemi í sagnfræði á Hugvísindasviði, og Unnur Þöll Benediktsdóttir, meistaranemi í öldrunarfræði á Félagsvísindasviði. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, afhenti styrkina í Hátíðasal HÍ.
 
Þórsteinssjóður var stofnaður af Blindravinafélagi Íslands 6. desember 2006 og er sá fyrsti sinnar tegundar hérlendis. Tilkoma hans eykur möguleika blindra og sjónskertra stúdenta til háskólanáms. Hlutverk og tilgangur Þórsteinssjóðs helgast af æviverki Þórsteins Bjarnasonar sem fæddist 3. desember árið 1900. Hann stofnaði Blindravinafélag Íslands 24. janúar 1932 og var það fyrsti vísir að félagi til hjálpar fötluðu fólki hér á landi. Þórsteinn helgaði líf sitt blindum og sjónskertum einstaklingum á Íslandi á síðustu öld án þess að þiggja nokkru sinni laun fyrir heldur lagði félaginu þvert á móti til fé úr eigin vasa.
 
Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem ánafnaðar hafa verið skólanum allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk.
 
 
Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is