Háskóli Íslands

Námsstyrkir til blindra og sjónskertra stúdenta við HÍ

Stjórn Þórsteinssjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.
 
Tilgangur Þórsteinssjóðs er í fyrsta lagi að styrkja blinda og sjónskerta stúdenta til náms við Háskóla Íslands. Í öðru lagi er markmið sjóðsins að efla rannsóknir sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri sýn, einkum í félags- og hugvísindum.
 
Umsóknarfrestur er til 14. nóvember 2022.
 
Í ár verða veittir námsstyrkir til blindra eða sjónskertra stúdenta sem stunda nám við Háskóla Íslands á skólaárinu 2022-2023. Heildarfjárhæð úthlutaðra styrkja er að hámarki 5 milljónir króna. 
 
Í umsókn um námsstyrk þurfa eftirtalin atriði að koma fram:
1.    Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og netfang.
2.    Helstu atriði úr náms- og/eða starfsferli umsækjanda og námsárangur í framhaldsskóla eða háskóla eftir því sem við á.
3.    Hvaða nám viðkomandi stundar við Háskóla Íslands.
4.    Meðmæli frá kennurum og/eða atvinnurekendum.
5.    Áætlun um námsframvindu.
 
Hámarkslengd umsóknar er þrjár síður. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn Þórsteinssjóðs áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.
 
Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands, sjodir@hi.is.
 
Áætlað er að úthluta styrknum 2. desember 2022. 
 
Tilkoma Þórsteinssjóðs hefur aukið möguleika blindra og sjónskertra stúdenta til að helga sig háskólanámi, en þetta er í ellefta skipti sem úthlutað er úr sjóðnum. 
 
Frekari upplýsingar um styrkveitingu og úthlutun er að finna á sjóðavef HÍ. Einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnastjóra Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is, sími 525-5894. 
 
Um sjóðinn
Þórsteinssjóður var stofnaður við Háskóla Íslands 6. desember 2006 af Blindravinafélagi Íslands til minningar um Þórstein Bjarnason, stofnanda Blindravinafélagsins. Tilgangur Þórsteinssjóðs helgast af æviverki Þórsteins, að efla líf blindra og sjónskertra einstaklinga á Íslandi.
Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is