Minningarsjóður Erlendar Jónssonar og Mörtu Ágústsdóttur auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.
Tilgangur sjóðsins er að efla stöðu íslenskunnar almennt og styrkja nemendur í íslensku, bókmenntum og ritlist við Háskóla Íslands. Sérstaklega skal stutt við verkefni er lúta að ritfærni og þjálfun nemenda við beitingu íslensks máls sem og við skapandi verkefni nemenda, s.s. ritlistarverkefni og hvers konar bókmenntasköpun á íslensku. Sjóðurinn er opinn nemendum bæði í grunnnámi og framhaldsnámi við Háskóla Íslands.
Í þetta sinn verða styrkir veittir til verkefna sem varða ritfærni og skapandi verkefni á íslensku fyrir þau sem hafa ekki íslensku að móðurmáli.
Umsóknarfrestur er til og með 26. maí 2025.
Heildarfjárhæð úthlutunar árið 2025 er allt að kr. 1.000.000.
Í umsókn um styrk þurfa eftirtalin atriði að koma fram:
- Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
- Helstu atriði úr náms- og starfsferilsskrá umsækjanda.
- Heiti verkefnis, markmið og vísindalegt eða hagnýtt gildi.
- Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, að hámarki 150 orð, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk.
- Veigameiri lýsing á verkefninu, að hámarki ein blaðsíða, þar sem fram kemur lýsing á markmiðinu með verkefninu, framkvæmd þess og mati á afrakstri, ásamt umfjöllun um hvernig verkefnið samrýmist markmiðum sjóðsins.
- Tímaáætlun og fjárhagsáætlun verkefnis.
- Ef um rannsóknarverkefni er að ræða skal gera grein fyrir helstu efnisþáttum þess.
- Samstarfsaðilar og aðrir styrkaðilar verkefnis ef við á.
- Hvernig styrkurinn verður notaður hljóti verkefnið styrk.
- Upplýsingar um annan fjárhagslegan stuðning.
- Nöfn, símanúmer og netföng mögulegra meðmælenda.
- Hámarkslengd umsóknar skal vera þrjár síður fyrir utan fylgiskjöl. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.
Áhersla er lögð á vönduð fræðileg vinnubrögð við gerð umsóknar. Með hliðsjón af eðli sjóðsins og stærð má gera ráð fyrir að vel afmörkuð verkefni sem ljúka má á 1–2 árum njóti forgangs. Framhaldsumsóknir kunna að þurfa að víkja fyrir nýjum umsóknum.
Styrkþegi skal gera grein fyrir stöðu verkefnisins að ári liðnu í framvinduskýrslu og láta fylgja sýnishorn/tilvísun í það sem hefur verið unnið. Að verkefni loknu skal skila lokagreinargerð um niðurstöður og árangur ásamt ráðstöfun fjárins og eigi síðar en tveimur árum frá styrkveitingu. Ef styrkur er ekki nýttur í samræmi við umsókn skal honum skilað. Ekki verður tekið við nýjum umsóknum frá þeim sem ekki hafa skilað framvinduskýrslu eða lokagreinargerð vegna fyrri styrkja á tilsettum tíma.
Áætlað er að úthlutun fari fram í júní 2025.
Umsóknum skal skila sem pdf-viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands: sjodir@hi.is.
Um sjóðinn
Minningarsjóður Erlendar Jónssonar og Mörtu Ágústsdóttur var stofnaður 3. desember 2024 til minningar um Erlend Jónsson, rithöfund, íslenskukennara og bókmenntagagnrýnanda, og konu hans, Mörtu Ágústsdóttur. Sjóðnum er ætlað að styrkja nemendur í námi í íslensku, bókmenntum og ritlist við Háskóla Íslands.
Hægt er að styrkja sjóðinn með peningagjöfum og frjálsum framlögum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 596-26-1760. Kennitala Styrktarsjóða Háskóla Íslands er 571292-3199. Mikilvægt er að merkja greiðsluna nafni sjóðsins. Netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands er sjodir@hi.is.
Frekari upplýsingar er að finna á sjóðavef Háskóla Íslands, www.sjodir.hi.is. Einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnisstjóra Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is og/eða Rúnari Helga Vignissyni, formanni úthlutunarnefndar sjóðsins, rhv@hi.is.