Menntasjóður Hugvísindasviðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja doktorsnema á lokastigum náms við deildir Hugvísindasviðs.
Umsóknarfrestur er til 17. febrúar 2020.
Heildarfjárhæð styrks er 2,1 milljón króna, sem skiptist á þrjú verkefni.
Í umsókn um styrk þurfa eftirtalin atriði að koma fram:
• Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
• Helstu atriði úr náms- og starfsferli og ritaskrá umsækjenda.
• Heiti rannsóknarverkefnis, markmið og vísindalegt gildi.
• Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, að hámarki 150 orð, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk.
• Veigameiri lýsing á rannsóknarverkefni, að hámarki ein blaðsíða, þar sem fram kemur markmið verkefnisins, hvernig því er ætlað að auka við núverandi þekkingu á sviði rannsóknarinnar.
• Tímaáætlun verkefnis. Miðað er við að doktorsritgerð verði skilað innan sex mánaða frá því að styrkur er veittur.
• Staðfesting frá leiðbeinanda og fulltrúum í doktorsnefnd á því að verkefnið sé á lokastigi.
• Nöfn, símanúmer og netföng þeirra sem leita má til um meðmæli.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.
Áhersla er lögð á vönduð fræðileg vinnubrögð við gerð umsóknar. Gert er ráð fyrir að styrkþegi skili sjóðnum skýrslu með helstu niðurstöðum og árangri af verkefninu þegar því lýkur.
Áætlað er að úthlutun fari fram við hátíðlega athöfn á Hugvísindaþingi 2020.
Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands: sjodir@hi.is.
Um Menntasjóð Hugvísindasviðs
Sjóðurinn var stofnaður við Háskóla Íslands 2018 og er safn sjóða sem tengjast fræðigreinum sem tengjast Hugvísindasviði og eru sameinaðir til þess að styðja við doktorsnám á Hugvísindasviði. Sjóðirnir eru: Det Danske Selskabs Studenterlegat (1943), Forlagsboghandler, Dr. Phil. h.c. Ejnar Munkgaards Stiftelse til Fordel for Det filosofiske Fakultet ved Islands Universitet i Reykjavik (1938), Minningarsjóður dr. Rögnvalds Péturssonar (1960), Minningarsjóður norskra stúdenta (1948), Norðmannsgjöf (1961) og Sögusjóður stúdenta (1930).
Frekari upplýsingar er að fá hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnisstjóra Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is, sími 525-5894.