Ákveðið hefur verið að veita styrki úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur í byrjun október 2011. Um er að ræða styrki til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum við Háskóla Íslands. Heildarupphæð styrkja er 1 milljón króna.
Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og verða veittir styrkir til rannsóknaverkefna hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi sem falla að markmiðum sjóðsins.
Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er til 20. ágúst 2011.
Val á styrkhöfum er í höndum stjórnarmanna. Stjórn sjóðsins skipa Sóley S. Bender, formaður stjórnarinnar og stjórnarformaður Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði, Stefán Bragi Bjarnason lögfræðingur, Helga Gottfreðsdóttir lektor, Aðalbjörg J. Finnbogadóttir hjúkrunarfræðingur og Sigurjón Ingi Haraldsson, fulltrúi heilbrigðisráðuneytis.
Rafræn umsóknareyðublöð er að finna á heimsíðu Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði: www.rsh.hi.is.
Þetta er í fjórða sinn sem styrkur er veittur úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur en sjóðurinn var stofnaður sem einn af Styrktarsjóðum Háskóla Íslands í júlí árið 2007. Áður hefur verið úthlutað úr sjóðnum, árið 2008, 2009 og 2010. Styrkhafar árið 2008 voru Jóhanna Bernharðsdóttir og Eydís Sveinbjarnardóttir, doktorsnemar í hjúkrunarfræði við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Styrkhafar árið 2009 voru Dr. Helga Gottfreðsdóttir, ljósmóðir og lektor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og doktorsneminn Þorbjörg Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og lektor við Háskólann á Akureyri. Árið 2010 voru styrkhafar Ingibjörg Hjaltadóttir, lektor við Hjúkrunarfræðideild HÍ, Ásta St. Thoroddsen, dósent við Hjúkrunarfræðideild HÍ og Anna Ólafía Sigurðardóttir, klínískur lektor og sérfræðingur í hjúkrun á Landspítala.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir, stofnandi sjóðsins, er fyrrverandi námsbrautarstjóri í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Hún hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar hjúkrunarmenntunar á Íslandi og var ein þeirra sem stóð að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 1973.
Frekari upplýsingar um sjóðinn er að finna á heimasíðu sjóðsins á sjóðavef Háskóla Íslands: www.sjodir.hi.is.
Hægt er að styrkja sjóðinn með ýmsu móti t.d. með gjöfum í tilefni árgangaafmæla eða útskriftar. Einnig er hægt að senda minningarkort og tækifæriskort frá sjóðnum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 0513-26-004057. Kennitala Styrktarsjóða HÍ er 571292-3199.
Frekari upplýsingar um styrki og styrkveitingar veitir Margrét Björnsdóttir, verkefnastjóri RSH, margbjo@hi.is, sími 525-5280.