Háskóli Íslands

Styrkir til rannsókna og námsstyrkir til blindra og sjónskertra stúdenta við HÍ

Stjórn Þórsteinssjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. 
 
Tilgangur Þórsteinssjóðs er í fyrsta lagi að styrkja blinda og sjónskerta stúdenta til náms við Háskóla Íslands. Í öðru lagi er markmið sjóðsins að efla rannsóknir sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri sýn, einkum í félags- og hugvísindum.
 
 
Umsóknarfrestur er til 11. nóvember 2019.
 
Í ár verða veittir námsstyrkir til blindra eða sjónskertra stúdenta sem stunda nám við Háskóla Íslands á skólaárinu 2019-2020.
 
Heildarfjárhæð úthlutaðra styrkja er að hámarki 500 þúsund krónur.
 
Í umsókn um námsstyrki þurfa eftirtalin atriði að koma fram:
1. Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og netfang.
2. Helstu atriði úr náms- og/eða starfsferli umsækjanda og námsárangur í framhaldsskóla eða háskóla eftir því sem við á.
3. Hvaða nám viðkomandi stundar við Háskóla Íslands.
4. Meðmæli frá kennurum og/eða atvinnurekendum.
5. Áætlun um námsframvindu.
 
Hámarkslengd umsóknar er þrjár síður. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn Þórsteinssjóðs áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.
Tilkoma Þórsteinssjóðs hefur aukið möguleika blindra og sjónskertra stúdenta til að helga sig háskólanámi. Þetta er í áttunda sinn sem úthlutað er úr sjóðnum en veittir hafa verið tuttugu og tveir námsstyrkir til nemenda við Háskóla Íslands og tveir styrkir til rannsóknarverkefnis. 
 
Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands, sjodir@hi.is.
 
Þórsteinssjóður var stofnaður við Háskóla Íslands 6. desember 2006 af Blindravinafélagi Íslands til minningar um Þórstein Bjarnason stofnanda Blindravinafélagsins. Tilgangur Þórsteinssjóðs helgast af æviverki Þórsteins að efla líf blindra og sjónskertra einstaklinga á Íslandi.
 
Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem ánafnaðar hafa verið Háskóla Íslands allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja við ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta og starfsfólk. Sjóðirnir eru mikil lyftistöng fyrir háskólann, sem hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga í gegnum tíðina en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.
 
Frekari upplýsingar um styrkveitingu og úthlutun er að finna á og sjóðavef HÍ. Einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnastjóra Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is, sími 525-5894. 
 
 
Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is