Háskóli Íslands

Styrkir til rannsókna tengdum krabbameini og kynlífi og ákvörðunum um lífslokameðferð

Tveir styrkir voru veittir úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur 13. desember sl. til doktorsrannsókna í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Í rannsóknunum eru skoðuð áhrif meðferðarsamræðna tengdra krabbameini og kynlífi annars vegar og hins vegar ákvarðananir um lífslokameðferð sjúklinga á bráðalegudeildum. Styrkhafar eru hjúkrunarfræðingarnir Jóna Ingibjörg Jónsdóttir og Guðrún Jónsdóttir. Heildarupphæð styrkjanna nemur 700.000 krónum. Þetta í níunda sinn sem úthlutað er úr sjóðnum en hann var stofnaður við Háskóla Íslands árið 2007.
 
Doktorsrannsókn Jónu Ingibjargar Jónsdóttur hefur það markmið að þróa meðferðarsamræður við konur með krabbamein og maka þeirra og skoða áhrif samræðna á aðlögun tengda kynlífi og nánd. Greining og meðferð krabbameins er fyrirséður álagsvaldur í sambandi við kynlíf og nánd. Skortur er á meðferðarrannsóknum um þetta efni meðal kvenna með krabbamein og maka þeirra. Tilgangur doktorsverkefnisins er að þróa og meta árangur meðferðar fyrir íslensk pör þar sem konan hefur greinst með krabbamein í því skyni að efla aðlögun tengda kynlífi og nánd. Væntingar eru um að niðurstöður rannsóknarinnar bæti þekkingu meðal hjúkrunarfræða á endurhæfingu og bata með tilliti til kynlífs hjá konum með krabbamein og mökum þeirra. 
 
Markmið doktorsrannsóknar Guðrúnar Jónsdóttir er að lýsa ákvörðunum um lífslokameðferð á bráðalegudeildum Landspítalans og efla skilning á ferli ákvörðunarinnar og yfirfærslu sjúklinga frá fullri meðferð yfir í lífslokameðferð. Ákvörðunin verður skoðuð frá þremur sjónarhornum. Í fyrsta lagi hvernig heilbrigðisstarfsmenn hafa metið og skráð upplýsingar um og meðferð deyjandi sjúklinga. Í öðru lagi hvernig heilbrigðisstarfsmenn hafa upplifað ákvörðun um lífslokameðferð. Í þriðja lagi verður reynslu fjölskyldna af lífslokameðferð á legudeildunum lýst. Gagna verður aflað með viðtölum við heilbrigðisstarfsmenn og fjölskyldur hinna látnu, rýnihópum og úr sjúkraskrám.
 
Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur eflir rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og veitir sjóðurinn styrki til rannsóknaverkefna sem samræmast markmiðum hans. Ingibjörg R. Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðingur og stofnandi sjóðsins, er fyrrverandi námsbrautarstjóri í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Ingibjörg hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar hjúkrunarmenntunar á Íslandi og var ein þeirra sem stóð að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 1973.
 
Hægt er að styrkja sjóðinn með ýmsu móti, t.d. með gjöfum í tilefni árgangaafmæla eða útskriftar. Einnig er hægt að senda minningarkort og tækifæriskort frá sjóðnum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 0513-26-004057. Kennitala Styrktarsjóðanna HÍ er 571292-3199. 
 
Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is